11 júní 2025

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Opið fyrir umsóknir um fyrirframgreiðslur jarðræktarstyrkja til kornræktar.

{image.Description}
Istock

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fyrirframgreiðslur jarðræktarstyrkja til kornræktar. Kornræktendur sem skila upplýsingum um sáningu á korni í skýrsluhaldsforritið Jörð fyrir 15. júní 2025 og senda skýrsluna í Afurð geta sótt um fyrirframgreiðslu vegna kornræktar.

Stofnað er til umsóknar í Afurð vegna fyrirframgreiðslunnar. Fyrirframgreiðslan miðast að jafnaði við 25% af einingaverði á hektara jarðræktarstyrks fyrra árs. Ekki er greidd fyrirframgreiðsla vegna annarrar ræktunar en kornræktar og mun fyrirframgreiðslan koma til frádráttar jarðræktarstuðningi sem kemur til greiðslu í desember.

Almennur umsóknarfrestur vegna jarðræktarstyrkja og landgreiðslna verður eftir sem áður 1. október 2025.