13 júní 2025

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Kynning á þróun raforkukostnaðar og áhrifum á notendur

{image.Description}

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið boðar til kynningar á skýrslu sem Umhverfis- og orkustofnun hefur unnið um þróun raforkukostnaðar og og tillögur til úrbóta, mánudaginn 16. júní kl. 10. Hægt að fylgjast með kynningunni í gegnum streymi á Stjórnarráðsvefnum.

Þegar litið er til verðbreytinga á breytilegu verðlagi, hefur smásöluverð raforku hækkað um tæplega 39% frá 2020 til 2025 og um 78% frá árinu 2005 til 2020.

Í greiningunni, sem kynnt verður er veitt yfirlit yfir þróun raforkukostnaðar fyrir mismunandi notendahópa, með áherslu á þá þætti sem hafa mótað þróun kostnaðar, s.s. breytingar á framboði og eftirspurn, þróun viðskiptavettvangs með raforku, og áhrifa regluverks. Þá tekur greiningin til áhrifa raforkukostnaðar á rekstrarstöðu og samkeppnishæfni ólíkra notendahópa, auk þess sem tillögur skýrsluhöfunda til úrbóta verða kynntar.

Auk ráðherra taka til máls Hanna Björg Konráðsdóttir, sviðsstjóri Raforkueftirlitsins og Gestur Pétursson, forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar.