14 júlí 2025

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Umsóknir um embætti skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands

{image.Description}
Verkmenntaskóli Austurlands

Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust fjórar umsóknir um embætti skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka. 

Umsækjendur um embætti skólameistara:

  • Anne Héléna Clara Herzog
  • Azoya Brutus Akumbobe
  • Birgir Jónsson

Embættið var auglýst laust til umsóknar hinn 24. júní síðastliðinn, með umsóknarfresti til og með 8. júlí. Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum. Skipað verður í embættið frá 1. ágúst næstkomandi.