10 ágúst 2025
/
Innviðaráðuneytið
Opnir íbúafundir með innviðaráðherra um allt land
Opnir íbúafundir með Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra verða haldnir í ágúst í öllum landshlutum undir yfirskriftinni Fjárfest í innviðum til framtíðar.
Tilgangur fundanna er að eiga samráð og kalla eftir sjónarmiðum íbúa og sveitarstjórnarfólks um málaflokka ráðuneytisins – samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál og fjarskipti og stafræna innviði. Það mun m.a. nýtast í vinnu við stefnumótun og undirbúning áætlana á vegum ráðuneytisins. Þá er stefnt að því að leggja fram samgönguáætlun síðar í haust og íbúum gefst því tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við ráðherra.
Fundirnir eru opnir öllum en hægt er að skrá sig á einstaka fundi hér að neðan. Fundir eru alla jafna haldnir síðdegis og boðið upp á kaffiveitingar á hverjum stað. Allir fundir hefjast kl. 16:30 nema á Akureyri en sá fundur hefst kl. 16:45.