15 ágúst 2025

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfisþing 15. og 16. september - skráning hafin

{image.Description}

Skráning er hafin á XIV. Umhverfisþing. Þingið, sem er umfangsmeira en undanfarin ár, verður haldið dagana 15. og 16. september í Silfurbergi í Hörpu. Meginþemu þingsins verða hafið, líffræðileg fjölbreytni og loftslagsmál.

Með þinginu vill Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra,  efla hlustun og samtal við almenning, félagasamtök og hagaðila um umhverfismál, með áherslu á framangreind þemu. Umhverfisþingi er ætlað að ná fram uppbyggilegu samtali um viðfangsefni þingsins og skapa grundvöll að framhaldsvinnu stjórnvalda í málaflokkunum. Dagskráin verður því ýmist í formi vinnustofa, fyrirlestra og pallborðsumræðna.

Drög að dagskrá

15. september kl. 13-16

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, setur þingið. 

Thomas Halliday, fornlíffræðingur og höfundur bókarinnar Otherlands: A World in the Making.

Samtal við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, um mikilvægi umhverfis- og loftslagsmála.

Afhending náttúruverndarviðurkenningar Sigríðar í Brattholti

Áhrifamáttur samtals – Hvernig eflum við samráð og samtal um loftslagsmál? Vinnustofa skipulögð af loftslagsktívistum.

Skráning þátttöku

 

16. september kl. 9:00 – 16:30. 

Ocean – sýning á 20 mínútna útgáfu af myndinni Ocean með David Attenborough

Pallborð 1: Lífríki hafsins og vernd hafsvæða - pallborðsumræður um tengsl verndunar hafsvæða við þróun lífríki hafsins og auðlindir þess.

Pallborð 2: Skyldan til að vernda hafið - pallborðsumræður um framkvæmd hafverndar, árangursríka umhverfisvernd í hafi og lagalega þróun á því sviði.

Hádegishlé

Vinnustofa 1. Verndum líffræðilega fjölbreytni  - hringborðsumræður  um stefnu stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni og aðgerðaáætlun í málaflokknum.

Vinnustofa 2: Fyrsta loftslagsstefna Íslands - hringborðsumræður til að undirbyggja efnistök fyrstu loftslagsstefnu Íslands.  

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra lokar þinginu

Skráning þátttöku.

Meðal annarra þátttakenda í þinginu eru:

  • Dr. Chris McOwen, sjávarlíffræðingur hjá Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP).
  •  Samantha Robb, lögfræðingur í hafréttardeild Ocean Vision Legal. Hún hefur bakgrunn í alþjóðarétti, alþjóðlegum hafrétti og mannréttindarétti.
  • Dr. Sian Prior, sjávarlíffræðingur. Prior hefur starfað fyrir og veitt ráðgjöf til fjölda umhverfisverndar- og hafverndarhópa, m.a. Clean Arctic Alliance.
  • Rui Martins, héraðsstjóri hafmála á Azoreyjum (Regional Director for Ocean Affairs).
  • Dr. Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir forstöðumaður rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Vestfjörðum.
  • Dr. Snorri Sigurðsson, líffræðingur og sviðsstjóri náttúruverndar, Náttúrufræðistofnun.
  • Björn Helgi Barkarson, umhverfisfræðingur og skrifstofustjóri umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.
  • Dr. Snjólaug Árnadóttir, dósent og doktor í hafrétti við Háskólann í Reykjavík.
  • Hrefna Karlsdóttir, sérfræðingur hjá Samtökum fyrirtækja í Sjávarútvegi, í fiskveiðistjórn og samningum við erlend ríki.

Öll eru velkomin, en skrá þarf þátttöku í þinginu fyrirfram. Hlutar dagskrár verða einnig aðgengilegir í beinu streymi. Athygli er vakin á að skrá þarf sérstaklega þátttöku í pallborðsumræðum og hverri vinnustofu fyrir sig.

Skráning þátttöku.