22 ágúst 2025

/

Heilbrigðisráðuneytið

Morgunverðarfundur um einstaklingssniðna heilbrigðisþjónustu (EHÞ) 27. ágúst

{image.Description}

Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að móta drög að stefnu um einstaklingssniðna heilbrigðisþjónustu (EHÞ) hefur skilað skýrslu sinni til heilbrigðisráðherra. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra boðar til morgunverðarfundar í samvinnu við starfshópinn og Landspítala, þar sem skýrslan verður kynnt og efni hennar rætt frá ýmsum hliðum. Nánari upplýsingar eru á vef ráðuneytisins og þar er skýrsla hópsins jafnframt aðgengileg. Sjá tilkynningu ráðuneytisins, dags. 18. ágúst

Mikilvægt er að þeir sem ætla að mæta á fundinn skrái þátttöku sína sem fyrst þar sem húsrými er takmarkað. Athygli er jafnframt vakin á því að streymt verður beint frá fundinum (þeir sem fylgjast með í streymi þurfa ekki að skrá þátttöku) og verður streymið aðgengilegt hér.

Fundarstjóri verður Henry Alexander Henrysson doktor í heimspeki.

Dagskrá fundarins

Opnun fundar: Kári Stefánsson, formaður starfshópsins 

Kynning á skýrslu starfshóps um EHÞ: Sædís Sævarsdóttir, forseti læknadeildar Háskóla Íslands

Áhrif EHÞ á heilbrigðisþjónustu framtíðarinnar: Hans Tómas Björnsson, yfirlæknir á Landspítala og prófessor við Háskóla Íslands

EHÞ í framkvæmd, Lynch-heilkennið: Sigurdís Haraldsdóttir, krabbameinslæknir, yfirlæknir á Landspítala og prófessor við Háskóla Íslands 

Persónuleg reynsla af EHÞ: Jóhanna Lilja Eiríksdóttir, formaður Brakka-samtakanna

Pallborð - Ávinningur og áskoranir
Henry Alexander stjórnandi pallborðs
Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands
Jón Jóhannes Jónsson, yfirlæknar erfða- og sameindalæknisfræðideildar Landspítala
María Heimisdóttir landlæknir
Martin Ingi Sigurðsson, yfirlæknir í svæfingar- og gjörgæslulækningum á Landspítala
Sigurdís Haraldsdóttir, krabbameinslæknir, yfirlæknir á Landspítala og prófessor við Háskóla Íslands Sædís Sævarsdóttir, forseti læknadeildar Háskóla Íslands
Þorvarður J. Löve, formaður vísindasiðanefndar

Samantekt og lokaorð: Alma D. Möller heilbrigðisráðherra