02 september 2025

/

Utanríkisráðuneytið

Ísland styður við mannréttindaverndara

{image.Description}
Fulltrúar ISHR og starfsfólk fastanefndar Íslands í Genf að lokinni undirskrift í dag.

Samningur um 20 milljóna króna framlag íslenskra stjórnvalda til starfsemi frjálsu félagasamtakanna International Service for Human Rights (ISHR) var undirritaður í Genf í dag. Einar Gunnarsson sendiherra skrifaði undir samninginn fyrir hönd Íslands.

ISHR eru ein öflugustu mannréttindasamtök á sviði mannréttindaverndara og starfar fastanefnd Íslands í Genf náið með samtökunum í tengslum við setu Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna 2025-2027.

Samtökin voru stofnuð árið 1984 og styðja við starfsemi baráttufólks fyrir mannréttindum eða svokallaðra mannréttindaverndara um allan heim með það að markmiði að byggja upp getu mannréttindastofnana og stuðla þannig að virðingu fyrir mannréttindum í fátækari ríkjum heims. Á síðasta ári studdu samtökin við yfir 1100 mannréttindaverndara frá yfir 60 löndum þ.m.t. í Afganistan og Úkraínu. 

Framlag Íslands kemur til með að nýtast samtökunum til að styðja enn frekar við kjarna starfsemi sína, einkum hvað varðar stuðning við afganskar baráttukonur og einstaklinga sem berjast fyrir  mannréttindum í tengslum við umhverfismál og loftslagsbreytingar.

Helstu áherslur Íslands í mannréttindaráðssetunni 2025-2027 eru mikilvægi þess að efla mannréttindi um heim allan, mannréttindi kvenna og stúlkna, réttindi barna, réttindi hinsegin fólks sem og tengsl umhverfismála og mannréttinda. Fastanefnd Íslands í Genf á í þéttu samstarfi og samráði við fjöldamörg félagasamtök sem eru leiðandi á sviði mannréttinda á heimsvísu og eru samtökin ISHR þar á meðal. 

Því má bæta við að Ísland hefur einnig stutt við mannréttindaverndara í Úganda undanfarin ár.