03 september 2025

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Einföldun á kröfum um lífsferilsgreiningar bygginga

{image.Description}
Hari

Þann 1. september sl. tók reglugerð nr. 383/2024 gildi en í henni er gerð krafa um skil á lífsferilsgreiningu fyrir nýbyggingar í samræmi við stefnu stjórnvalda um að draga úr kolefnisspori mannvirkja.

Reglugerðin er búin að vera á svokölluðu aðlögunartímabili frá marsmánuði 2024. Í upphafi gerði reglugerðin kröfu um tvenn skil á lífsferilsgreiningu – hvoru tveggja við umsókn um byggingarleyfi og síðan við lokaúttekt.

Reynsla á aðlögunartímabilinu hefur leitt í ljós að rétt þykir að einfalda verklagið og því verður kröfu um skil við lokaúttekt frestað um ótilgreindan tíma.

Með þessari breytingu verður unnt að styðja betur við fagaðila að tileinka sér aðferðafræðina og byggja upp færni. Nálgunin er í samræmi við áherslur á Norðurlöndum, þar sem lögð er sérstök áhersla á gæði gagna á hönnunarstigi og stigvaxandi innleiðingu losunarviðmiða. Með þessu er tryggð markviss og raunhæf innleiðing kröfu um lífsferilsgreiningar, án þess að draga úr gæðum greininganna eða markmiðum reglugerðarinnar.

Höfuðáherslur breytingarinnar

  • Krafa um skil á lífsferilsgreingum við umsókn um byggingarleyfi tók gildi 1. september 2025.
  • Skil við lokaúttekt frestað að sinni.
  • Fagfólk fær svigrúm til að tileinka sér aðferðafræðina áður en tvíþætt skil verða innleidd.
  • Þróun viðmiða og undirbúningur fyrir skil við lokaúttekt heldur áfram.
  • Nálgunin samræmist norrænum áherslum; gæði gagna á hönnunarstigi og stigvaxandi innleiðing losunarviðmiða.