03 september 2025

/

Utanríkisráðuneytið

Fjölþjóðlega sprengjueyðingaræfingin Northern Challenge hefst í næstu viku

{image.Description}
LHG
Sprengjusérfræðingar.

Sprengjusérfræðingar frá 18 löndum hafa í vikunni komið til landsins vegna árlegu sprengjueyðingaræfingarinnar Northern Challenge, sem hefst formlega á mánudaginn og er nú haldin í tuttugasta og fjórða sinn hérlendis.

Landhelgisgæslan annast og skipuleggur æfinguna, en vegfarandur munu eiga von á því að sjá brynvarin ökutæki og búnað vegna æfingarinnar á ferð frá Þorlákshöfn að Reykjanesi og frá Reykjanesi að Hvalfirði. Æfingin fer að stærstum hluta fram innan öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli en einnig í Helguvík og Hvalfirði.

Alls taka um 400 þátttakendur frá Íslandi, Belgíu, Kanada, Tékklandi, Danmörku, Frakklandi, Þýskalandi, Írlandi, Litáen, Nýja-Sjálandi, Svíþjóð, Noregi, Austurríki, Póllandi, Hollandi og Bretlandi þátt í Northern Challenge að þessu sinni. Sprengjusérfræðingar allra þessara þjóða hafa hlotið sömu grunnþjálfun og starfa eftir sömu verklagsreglum.

Þá munu fulltrúar frá bandarísku alríkislögreglunni sömuleiðis taka þátt í æfingunni og deila reynslu sinni af meðhöndlun sönnunargagna. 

Á æfingunni gefst kostur á að æfa og samhæfa viðbrögð við atvikum sem kunna að koma upp, eins og t.d. hryðjuverkum. Æfingin í ár tekur einnig mið af þeim ógnum sem fyrir hendi eru í heiminum í dag.  Á æfingunni er líkt eftir sprengjum sem fundist hafa víða um heim og þurfa þátttakendur að meðhöndla þær og aftengja.

Æfingin veitir sprengjusérfræðingum einstakt tækifæri til að samhæfa aðgerðir auk þess að miðla reynslu og þekkingu sinni til annarra liða. Northern Challenge hefur notið mikillar virðingar á meðal bandalagsþjóða Atlantshafsbandalagsins og hefur skipað sér sess sem ein mikilvægasta æfing sprengjusérfræðinga innan Atlantshafsbandalagsins. 

Eins og fyrr segir hefst æfingin á mánudaginn, en hún stendur til 18. september.