03 september 2025

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Styrkjum til tækjakaupa fyrir lífræna framleiðslu úthlutað í fyrsta sinn

{image.Description}
istock/Pedro Carrilho

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur úthlutað styrkjum til tækjakaupa fyrir lífræna framleiðslu. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkum styrkjum er úthlutað og er styrkveitingin ein aðgerða í aðgerðaáætlun til eflingar lífrænni framleiðslu sem kom út í ágúst 2024.

Í aðgerðaáætluninni eru settar fram 14 aðgerðir sem skipt er í nokkra málaflokka. Hver málaflokkur snýr að tilteknum hluta virðiskeðju lífrænna matvæla eða að innviðum sem nauðsynlegir eru til að keðjan verði sem sterkust.  

Auglýsing var birt í byrjun árs og bárust ellefu umsóknir. Fagráð í lífrænni ræktun veitti umsagnir um umsóknirnar en úthlutun var á vegum atvinnuvegaráðuneytisins.

Til ráðstöfunar á árinu 2025 eru 30 milljónir kr. en úthlutað var 24,5 milljónum til eftirfarandi aðila:

Í tveimur tilvikum fengu umsækjendur styrki til kaupa á fleiri en einu tæki.

Styrkir til tækjakaupa fyrir lífrænni framleiðslu - úthlutun árið 2025


Umsækjandi Samþykktur styrkur kr.
Elínborg Erla Ásgeirsdóttir 1.090.000
Friðgeir Jónasson 469.000
Kristján Oddsson 1.795.000
Kristján Oddsson 1.595.000
Móðir Jörð ehf 2.657.500
Ólafur Ingi Sigurmundsson 6.180.000
Skrifandi ehf. 5.000.000
Smiðjugrund ehf. 1.250.000
Steinaborg Berufjarðarströnd ehf 987.000
Syðra-Holt ehf 474.300
Syðra-Holt ehf 3.000.000
Samtals 24.497.800