04 september 2025
/
Utanríkisráðuneytið
Ráðherra fundaði með vararáðherra Indlands í umhverfis-, skógar- og loftslagsmálum
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók í morgun á móti Kirti Vardhan Singh, vararáðherra Indlands í umhverfis-, skógar- og loftslagsmálum, í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn.
Á fundi ráðherranna gafst gott tækifæri til að ræða verndum líffræðilegrar fjölbreytni hafsins sem og aðgerðir til að draga úr plastmengun í hafi. Ráðherrarnir ræddu sömuleiðis mögulegar leiðir ríkjanna til að efla samstarf sitt á sviði jarðhitamála.
Þá voru málefni Úkraínu og Gaza tekin upp á fundinum og ítrekaði Þorgerður Katrín óbilandi stuðning Íslands við Úkraínu og áréttaði um leið að landvinningastríð Rússlands ógni öryggi Evrópu. Þá væri ömurleg staða mannúðarmála á Gaza með öllu óásættanleg.