04 september 2025

/

Innviðaráðuneytið

Unnið að umbóta- og hagræðingarverkefnum á málefnasviði ráðuneytisins

{image.Description}
Hari

Innviðaráðuneytið vinnur að umbóta- og hagræðingarverkefnum í takt við stefnu ríkisstjórnarinnar um hagsýni í ríkisrekstri. Í upphafi árs efndi ríkisstjórnin til samráðs við almenning, ríkisstofnanir og ráðuneyti, og óskaði eftir tillögum sem sneru að hagræðingu eða umbótum í ríkisrekstri. Þúsundir tillagna bárust og starfshópur um hagræðingu í ríkisrekstri vann úr þeim og skilaði eigin tillögum í byrjun mars. 

Vinnuhópur forsætis- og fjármálaráðuneytis, í samvinnu við önnur ráðuneyti, hefur síðan unnið að framkvæmd tillagna fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Hópurinn skilaði verkáætlun í júní, þar sem alls voru skilgreind 178 verkefni þvert á ráðuneyti, sem þeim er falið að leiða til lykta á kjörtímabilinu.

Meðal þess innviðaráðuneytið skoðar í þessum efnum er greining á tilfærslu verkefna og meðal annars verður skoðað verður hvort afmörkuð verkefni færist milli stofnana til að nýta betur fjármuni hins opinbera.

Einnig verða færð frá ráðuneytinu verkefni sem ekki er nauðsynlegt að það sinni og eiga betur heima í undirstofnunum. Dæmi um þetta eru staðfesting ýmissa samþykkta, staðfesting samstarfssamninga sveitarfélaga og útgáfa heimilda til forgangsaksturs.

Áfram verður unnið að aukinni stafvæðingu hins opinbera sem gefið hefur góða raun síðustu ár. Greind verða tækifæri til hagræðingar með endurskoðun á regluverki. Loks verður unnið að því að sameina nefndir og fækka fólki í lögbundnum stjórnum eða ráðum.

Reglubundnar kannanir um einföldun regluverks og bætta þjónustu

Innviðaráðuneytið og stofnanir þess hafa kallað reglulega kalla eftir ábendingum um það hvernig bæta megi þjónustu í málaflokkum á þeirra vegum. Gerðar hafa verið vefkannanir í þessu skyni þar sem fólki hefur gefist kostur á því að benda á það sem betur má fara í regluverki ráðuneytis og fagstofnunum þess. Slíkar kannanir verða áfram gerðar til að safna saman ábendingum um það sem betur mætti fara.

Markmiðið er bæta þjónustu hins opinbera með því að greina hvort og hvar lagðar eru óþarfar, flóknar eða óljósar byrðar á einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög eða félagasamtök sem þurfa þjónustu eða leita erinda hjá ráðuneytinu eða stofnunum þess