04 september 2025

/

Forsætisráðuneytið

Vaxtarplan til 2035: Forsætisráðherra kynnti áherslur ríkisstjórnarinnar ​

{image.Description}

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra kynnti áherslur ríkisstjórnarinnar við mótun nýrrar atvinnustefnu á opnum fundi á Hilton Nordica í dag sem bar yfirskriftina Vaxtarplan til 2035.

Í erindi sínu lagði forsætisráðherra áherslu á að atvinnustefnan eigi að vera hagvaxtarstefna. „Þetta er 10 ára vaxtarplan sem lýsir því hvernig ríkið vinnur með atvinnulífinu og hvers konar hagvöxt við viljum á Íslandi – plan sem er sett fram til að samhæfa aðgerðir og sækja tækifærin saman,“ sagði forsætisráðherra.

„Ef við höldum rétt á spilunum þá getur nútímaleg atvinnustefna lagt grunn að betri hagvexti á Íslandi, meiri hagvexti á mann – sem er lykilatriði – með minna álagi á samfélag, umhverfi og innviði. Við ætlum að fjölga vel launuðum störfum um land allt og styðja við hagvöxt í góðu jafnvægi. Þetta er meginmarkmiðið. Verkefnið er skýrt,“ sagði forsætisráðherra.

Forsætisráðherra lagði áherslu á að atvinnustefna snúist ekki um það að ríkið ætli að stýra öllu atvinnulífinu og hygla tilteknum atvinnugreinum á kostnað annarra eða etja saman atvinnugreinum. Ekkert slíkt standi til enda þurfi vöxtur og velgengni í einni atvinnugrein alls ekki að koma niður á öðrum greinum, heldur þvert á móti.

„En í grunninn gengur þetta út á að vera með plan og stefnufestu til að fylgja því eftir. Því ríkið er betri bandamaður fyrir atvinnulífið þegar áherslurnar og forgangsmálin liggja fyrir,“ sagði forsætisráðherra.

Skipað í atvinnustefnuráð

Forsætisráðherra greindi einnig frá því að ríkisstjórnin hafi samþykkt skipun atvinnustefnuráðs. Hlutverk ráðsins er að veita stjórnvöldum til ráðgjöf um mótun, áherslur og framkvæmd atvinnustefnu Íslands til 2035.

Í atvinnustefnuráði eiga sæti:

  • Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands
  • Nana Bule, ráðgjafi og stjórnarkona
  • Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu
  • Robert-Jan Smits, fyrrverandi formaður stjórnar Eindhoven-háskóla
  • Tanya Zharov, lögfræðingur

Á fundinum flutti Sveinbjörn Finnsson, aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar, erindi um stöðu og þróun efnahags og atvinnulífs á Íslandi og Nana Bule flutti erindi um alþjóðlegar áskoranir og samvinnu ríkis og stjórnvalda. Loks var boðið til samtals forsætisráðherra, atvinnuvegaráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra við fundargesti.

Upptaka af fundi um atvinnustefnu Íslands

Erindi Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra á fundinum

Stöðugreining: Innri og ytri kraftar – Glærukynning Sveinbjörns Finnssonar