05 september 2025
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Einfaldað, hagrætt og sameinað hjá MNH
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið (MNH) leggur áherslu á að hagræða í starfsemi sinni til að nýta fjármuni betur, einfalda stofnanaumhverfi, auka skilvirkni og bæta þjónustu við landsmenn. 21 hagræðingarverkefni er þegar í vinnslu og ráðgert er að ljúka þeim öllum á tímabili núgildandi fjármálaáætlunar, sem nær til ársins 2030. Fleiri verkefni eru til athugunar í ráðuneytinu en hér að neðan eru verkefnin, sem nú er unnið að, reifuð stuttlega.
Endurskoðun laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki
Frumvarp þess efnis væntanlegt á haustþingi, byggt á greiningarvinnu fjármála- og efnahagsráðuneytis og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis. Frumvarpinu er ætlað að bæta framkvæmdina og skerpa á skilyrðum og umgjörð stuðningsins.
Endurskoðun á fjárfestingarheimildum Nýsköpunarsjóðsins Kríu
Heimild til nýfjárfestinga í sjóðum verður lækkuð. Áhersla verður á opinberan stuðning í takti við stefnu stjórnvalda í nýsköpun.
Endurskipulagning sjóðakerfis á sviði vísinda og nýsköpunar
Frumvarp væntanlegt á haustþingi þar sem lagt er til að átta samkeppnissjóðum á sviði vísinda og nýsköpunar sé fækkað í fjóra, í þágu aukinnar skilvirkni, svo aukið fé skili sér til verkefna og lægri umsýslukostnaðar. Frumvarpið felur einnig í sér endurskoðun á starfsemi Rannís.
Sameiginleg sjóðagátt og einfaldara umsóknarkerfi í samstarfi við Island.is
Verkefnið er samvinnuverkefni nokkurra ráðuneyta og stýrt af fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Aðkoma MNH snýr að þeim sjóðum sem heyra undir ráðuneytið, sem og aðkomu Rannís sem stofnunar MNH. Tilgangurinn er að lækka umsýslukostnað og auka yfirsýn bæði stjórnvalda og umsækjenda.
Aukin notkun gervigreindar í stjórnsýslunni, heilbrigðiskerfinu og unnið gegn gullhúðun regluverks
Aðgerðir sem lúta að þessu er að finna í aðgerðaáætlun um gervigreind sem kynnt var í sumar. Til þess fallið að auka skilvirkni, hagkvæmni og bæta þjónustu við landsmenn.
Kvikmyndasafn Íslands, Hljóðbókasafn Íslands og Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn sameinuð
Áform þess efnis hafa verið kynnt en ráðgert er að formleg sameining raungerist á seinni hluta næsta árs.
Óperan, Þjóðleikhúsið og Íslenski dansflokkurinn sameinuð
Áform um sameiginlega yfirstjórn yfir sviðslistastofnunum þremur. Fyrsta skrefið hefur þegar verið stigið með stofnun Óperunnar innan Þjóðleikhússins í sumar.
Endurskoðun á endurgreiðslum vegna kvikmyndaframleiðslu
Frumvarp væntanlegt á haustþingi með fyrstu breytingum á endurgreiðslunum. Næstu skref eru samstarf við fjármála- og efnahagsráðuneytið um frekari endurskoðun. Endurskoðun er ætlað að skerpa á skilyrðum og umgjörð stuðningsins til að einfalda eftirlit og auka yfirsýn.
Listasafn Einars Jónssonar og Listasafn Íslands sameinuð
Frumathugun á sameiningu er lokið og var tillaga þess efnis kynnt stjórnendum og starfsfólki í vikunni. Næstu skref eru að hefja formlegt undirbúningsferli með tilheyrandi áætlunargerð. Sameiningartillagan leggur upp með að hið sameina safn sé áfram í aðskildu húsnæði en rekstur sameiginlegur með það að sjónarmiði að styrkja innviði og renna stoðum undir reksturinn.
Náttúruminjasafn Íslands og Náttúrufræðistofnun sameinuð
Samtal er hafið við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið um möguleikann á sameiningu Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar. Talsverð skörun er á starfsemi þessara stofnana og því mikil tækifæri til rekstrarlegrar og faglegrar samlegðar, ekki síst með aukinni samþættingu rannsókna á náttúru Íslands, vöktunar og miðlunar upplýsinga til samfélagsins.
Sameiginlegt varðveisluhúsnæði safna
Kortlagning á varðveislurýmum safna og stöðu þeirra sýnir að víða er pottur brotinn. Hafin er vinna við að skoða næstu skref og forgangsraða aðgerðum.
Stofnun menningarsjóðs
Einföldun á sjóðakerfi menningar og lista með það að markmiði að stuðningur sé skilvirkari, gagnsæi aukið og að meira fé skili sér til verkefna. Stefnt að því að kerfið sé meira í takt við það sem þekkist í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Formleg vinna hefst í haust í samtali og samvinnu við hagaðila.
Samþætting fjölmiðlanefndar við aðra stofnun
Verið er að kanna sameiningu/samrekstur fjölmiðlanefndar með öðrum stofnunum á sviði neytendaverndar og eftirlits. Verkefnið krefst samstarfs við önnur ráðuneyti.
Sameining Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst
Viðræður milli skólanna hófust á síðasta ári, niðurstöðu þeirra er að vænta á næstu mánuðum og verður tekin ákvörðun í kjölfarið.
Sameining Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands
Mikilvægur áfangi náðist þegar rektorar skólanna undirrituðu samkomulag um stofnun háskólasamstæðu í lok apríl. Stjórnarfrumvarp um lagabreytingar vegna háskólasamstæðu verður lagt fram á haustþingi 2025. Miðað er við að samstæðan taki til starfa í áföngum frá 2026.
Keldur og Landbúnaðarháskóli Íslands verði hluti af háskólasamstæðu HÍ
Byggt verður á fyrri greiningarvinnu um samlegðaráhrif þess að Keldur og LbHÍ starfi saman undir merkjum háskólasamstæðu HÍ.
Endurskoðun og einföldun á starfsemi Menntasjóðs námsmanna
Um er að ræða þrenns konar verkefni: 1) Áframhaldandi endurskoðun á lögum um Menntasjóð námsmanna 2) Útfærsla á fjármögnun Menntasjóðs m.t.t. hagkvæmni 3) Lækkun rekstrarkostnaðar, einföldun umsýslu og aukning skilvirkni í starfseminni.
Sala og betri nýting á húsnæði háskóla
Nefnd á vegum forsætisráðuneytis vinnur að aðgreiningu skóla- og menningarstarfsemi að Hólum. Í kjölfarið er ráðgerð sala á húsnæði sem ekki er þörf á fyrir skólahald.
Leggja niður stjórnir sem heyra beint undir ráðherra
Stjórnum fækkar með sameiningum stofnana, en jafnframt er til skoðunar að fækka stjórnarmönnum.
Fækkun nefnda og ráða á málefnasviðum MNH
Horft er til margra nefnda og ráða í þessu samhengi, en fyrsta skrefið verður að sameina nefnd um vandaða starfshætti í vísindum við vísindasiðanefnd. Hugað verður að sameiningu í samstarfi við heilbrigðisráðuneytið og háskólana. Með einföldun á sjóðakerfinu, sem nefnt er hér að ofan, verður einnig horft til hagræðingar í nefndum og ráðum.
Ráðstöfunarfé ráðherra lagt niður
Ráðherra úthlutar ekki skúffufé heldur býðst almenningi að sækja um styrki á málefnasviðum MNH í sjóðinn Örvar. Er þetta liður í að gæta jafnræðis, hlutlægni, gagnsæis og samkeppnissjónarmiða í samræmi við lög um opinber fjármál.