05 september 2025

/

Utanríkisráðuneytið

Ísland afhendir Úkraínu kæligáma undir fallna hermenn

{image.Description}

Íslensk stjórnvöld brugðust við ákalli varnarmálaráðuneytis Úkraínu og hafa afhent stjórnvöldum í Kænugarði 25 kæligáma sem notaðir verða til að varðveita líkamsleifar fallinna hermanna. Gámarnir hafa þegar verið fluttir á réttarmeinadeildir víðsvegar um Úkraínu.

Kæligámarnir koma til með að flýta fyrir flutningum á föllnum úkraínskum hermönnum af vígvellinum og í hendur aðstandenda þeirra og þá gerir slík varðveisla líkamsleifa hægara um vik að bera kennsl á viðkomandi.

„Það var sjálfsagt að koma hratt og vel til móts við beiðni vina okkar með þessum hætti, sem skiptir auðvitað sköpum fyrir aðstandendur og ástvini þeirra sem hafa fallið í þessu blóðuga og ömurlega landvinningastríði Rússa,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Þetta er lítið verkefni sem þó vegur þungt, og sýnir um leið styrkleika og sveigjanleika okkar sem smáríkis að geta brugðist við með svo skömmum fyrirvara.“

Ísland hefur stutt við Úkraínu með margvíslegum hætti frá því að ólöglegt innrásarstríð Rússa í Úkraínu hófst í febrúar árið 2022, jafnt í formi mannúðaraðstoðar sem og efnahagsuppbyggingar með varnartengdum stuðningi.

Stjórnvöld í Úkraínu hafa komið innilegum þakkarkveðjum sínum á framfæri við íslensk stjórnvöld fyrir stuðninginn, hjálpina og vinarþelið sem afhending kæligámana til úkraínsku þjóðarinnar á þessum erfiðu tímum feli í sér.