05 september 2025

/

Utanríkisráðuneytið

Norrænir þróunarmálaráðherrar funduðu í Finnlandi

{image.Description}

Umbætur á starfsemi Sameinuðu þjóðanna og þær áskoranir sem alþjóðasamfélagið stendur frammi fyrir á tímum mikils niðurskurðar til þróunarsamvinnu bar hæst á fundi þróunarmálaráðherra Norðurlandanna sem haldinn var í Finnlandi í dag. Þá var rætt um mikilvægi þess að standa vörð um mannréttindi og lýðræði á tímum mikilla breytinga í alþjóðlegu samstarfi.


Á fundinum í dag var rætt um fjármögnun þróunarsamvinnu í tengslum við aðgerðaráætlun sem samþykkt var á fundi aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna í Sevilla í sumar. Norðurlöndin hafa lagt áherslu á að efla innlenda tekjuöflun og skattkerfi í þróunarríkjum, sem og að bæta viðskiptaumhverfi til að auka fjárfestingar í efnaminni löndum. Mikilvægt er að Norðurlöndin tali einni röddu til að auka fjármögnunarleiðir og tryggja umbætur innan kerfisins.


Málefni Úkraínu og Palestínu bar einnig hátt á fundinum í Finnlandi. Norðurlöndin veita miklu fé til mannúðarstarfs í Úkraínu og leggja sameiginlega áherslu á orku og græn umskipti, efnahagslega og félagslega uppbyggingu, sem og jafnréttismál, auk þess að styðja aðildarferli Úkraínu að Evrópusambandinu. Í tengslum við átökin í Palestínu hafa Norðurlöndin þrýst á um aukið aðgengi Sameinuðu þjóðanna og annarra hjálparsamtaka að Gaza til að bregðast við þeirri miklu neyð sem þar hefur verið.


Ville Tavio, þróunarmálaráðherra Finnlands, var gestgjafi í dag en auk hans sátu fundinn Benjamin Dousa, viðskipta- og þróunarmálaráðherra Svíþjóðar, Elsebeth Søndergaard Krone, ráðuneytisstjóri þróunarsamvinnu Danmerkur, og Stine Renate Håheim, ráðuneytisstjóri Noregs. Elín R. Sigurðardóttir, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, sótti fundinn fyrir hönd utanríkisráðherra.