05 september 2025

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Opið fyrir umsóknir fyrir almenna jarðræktarstyrki og landgreiðslur fyrir árið 2025

{image.Description}
Hari

Umsóknum skal skilað fyrir miðnætti, miðvikudaginn 1. október nk. Til að geta sent inn umsókn í Afurð þarf að liggja fyrir skýrsla um ræktun ársins 2025 í skýrsluhaldskerfinu Jörð.

Athygli er vakin á að þeir framleiðendur sem sóttu um jarðræktarstyrk vegna útiræktaðs grænmetis þurfa að sækja sérstaklega um almennan jarðræktarstyrk.

Jarðræktarstyrkir

Jarðræktarstyrkjum skal varið til nýræktar og endurræktunar á túnum, kornræktar og ræktunar annarra fóðurjurta. Uppskera er forsenda fyrir jarðræktarstyrk.
Styrkhæf ræktun er ræktun grass, korntegunda til dýrafóðurs og manneldis, ræktun olíujurta, þar með talin ræktun jurta til framleiðslu á lífdísil, enda sé hratið nýtt til fóðurs. Einnig ræktun grænfóðurs til beitar og uppskeru á ræktunarári. Beit búpenings telst ígildi uppskeru og því styrkhæf, einnig nýting kornhálms og annarra jurta til uppræktunar jarðvegs í útiræktun grænmetis.
Ræktun vetraryrkja sem sáð er um mitt sumar og endurræktun túna er tekin út á ræktunarári.

Landgreiðslur

Skilyrði fyrir landgreiðslum er uppskera til fóðuröflunar á ræktuðu landi sem umsækjanda er heimilt að nýta. Ef einungis hluti þess lands sem sótt er um styrk út á gefur uppskeru, skal skrá sérstaklega fjölda þeirra hektara.

Ágangur álfta og gæsa

Þá er einnig vakin athygli á að greiddur er stuðningur vegna skemmda sem hlotist hafa af ágangi álfta og gæsa á nýrækt, við endurrækt á túnum, kornrækt og rækt annarra fóðurjurta

Umsóknir berist á Afurð.