05 september 2025

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Opið fyrir umsóknir vegna síðari úthlutunar þróunarverkefna búgreina árið 2025

{image.Description}
istock/Dendron

Athygli er vakin á að umsóknarfrestur um þróunarverkefni búgreina er til 15. október 2025. Auglýst er eftir umsóknum tvisvar á ári.

  • Í nautgriparækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska nautgriparækt og fela í sér rannsóknir og þróunarverkefni.

  • Í sauðfjárrækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska sauðfjárrækt og falla undir kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og/eða þróun í sauðfjárrækt.

  • Í hrossarækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska hrossarækt og fela í sér að viðhalda verðmæti eiginleika í íslenska hrossastofninum og velferðar hestsins.

  • Í garðyrkju eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska garðyrkju og falla undir ráðgjafaverkefni, kynningaverkefni, rannsókna- eða tilraunaverkefni, vöruþróunarverkefni, verkefni sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og endurmenntunarverkefni.

Umsóknir berist á Afurð.