05 september 2025

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Sex umsækjendur um embætti forstjóra Ráðgjafar- og greiningarstöðvar

{image.Description}

Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust sex umsóknir um embætti forstjóra Ráðgjafar- og greiningarstöðvar.

Umsækjendur um embætti forstjóra eru:

  • Davíð R. M. A. Höjgaard, sálfræðingur, PhD
  • Harpa Jörundardóttir, sviðsstjóri
  • Helga Kristín Gestsdóttir, fræðslu- og kynningarstjóri
  • Jessica Leigh Andrésdóttir, deildarstjóri
  • Sigríður Lovísa Tómasdóttir, framkvæmdastjóri
  • Sigurbjörg Fjölnisdóttir, sviðsstjóri.

Embættið var auglýst laust til umsóknar hinn 15. ágúst síðastliðinn, með umsóknarfresti til og með 2. september. Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn.