08 september 2025

/

Innviðaráðuneytið

Ný reglugerð tryggir sömu gjöld fyrir farnetsþjónustu í Bretlandi

{image.Description}
Mynd/iStock

reglugerð hefur verið birt í Stjórnartíðindum sem á að tryggja aðfarsímanotendur í viðskiptum við íslensk fjarskiptafyrirtæki munu greiða sömu gjöld fyrir farnetsþjónustu í Bretlandi og í öðrum ríkjum ESB og EES. Markmiðið er að auka neytendavernd á fjarskiptamarkaði og færa gjaldtöku smásölugjalda fyrir reikiþjónustu íslenskra fjarskiptafyrirtækja í Bretlandi til samræmis við Evrópureglur.

Þessar breytingar eru í takt við áherslur ríkja innan ESB og EES að ekki þurfi að greiða óhóflegt gjald fyrir farnetsþjónustu (talsíma-, smáskilaboða- og netþjónustu) við það eitt að fara yfir landamæri innan Evrópusambandsins.

Íslensk fjarskiptafyrirtæki skulu því bjóða viðskiptavinum sínum heimaverðskrá (e. Roam Like Home) þegar þeir ferðast til Bretlands, enda sé notkunin í samræmi við eðlilegt notkunarmynstur ferðamanns. Þessi regla gildir ekki um viðvarandi reiki (e. permanent roaming).

Reglugerðin er sett á grundvelli fjarskiptalaga (70/2022) og tekur hún formlega gildi 1. október nk. Mörg fjarskiptafyrirtæki hófu þó þegar að breyta gjaldskrám sínum þegar áform um um reglugerðina voru kynnt fyrr í sumar.