09 september 2025

/

Utanríkisráðuneytið

Breytt landslag þróunarsamvinnu í brennidepli á fundi OECD-DAC í Hörpu

{image.Description}
Anton Brink
Fundargestirnir samankomnir í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn.

Stórfelldur niðurskurður stórra framlagsríkja til opinberrar þróunaraðastoðar á yfirstandandi ári setti mark sitt á Tidewater-fund Þróunarsamvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD-DAC), sem fram fór í Hörpu í dag. Þar var breytt landslag alþjóðlegrar þróunarsamvinnu efst á baugi, en fyrirséð er að miklar breytingar verði á hefðbundinni fjármögnun opinberrar þróunarastoðar af þessum sökum.

„Alþjóðleg þróunarsamvinna er einn af hornsteinum utanríkisstefnu Íslands, en við vitum auðvitað að með framlögum okkar fjárfestum við um leið í velsæld, öryggi og sjálfbærni sem getur af sér stöðugleika, allri heimsbyggðinni til heilla,” segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra. „Það er beinlínis skylda velmegnandi þjóða eins og okkar að leggja þessu gríðarlega mikilvæga málefni lið og þrátt fyrir núverandi kringumstæður er engan bilbug að finna á stuðningi okkar, heldur þverrt á móti.“

Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, stýrði fundinum í dag ásamt Carsten Staur, formanni OECD-DAC. Hann sagði stórfelldar og örar breytingar í heimsmálunum hafa komið niður á þróunarsamvinnu, þar sem mörg stór framlagsríki hafi skorið niður fjárveitingar. Áskorunin felist í því að auka þróunaráhrif þeirra framlaga sem eftir eru, en til þess sé nauðsynlegt að ráðast í umbætur á stofnunum og kerfum alþjóðlegrar þróunarsamvinnu.

OECD-DAC er vettvangur hefðbundinna framlagsríkja í þróunarsamvinnu, sem Ísland gerðist aðili að árið 2013, og stuðlar að þróun bestu starfsvenja, rannsókna og samhæfingar. Tidewater-fundurinn er árlegur fundur hátt settra embættismanna aðildarríkja OECD-DAC á sviði þróunarsamvinnu og er þetta í fyrsta skipti sem Ísland er gestgjafi fundarins.