09 september 2025

/

Forsætisráðuneytið

Utanríkisráðuneytið

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Formenn kynntu verkefnalista ríkisstjórnarinnar

{image.Description}
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra kynna verkefnalista ríkisstjórnarinnar fyrir komandi þingvetur

Formenn stjórnarflokkanna, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra, kynntu í dag verkefnalista ríkisstjórnarinnar fyrir komandi þingvetur. Á blaðamannafundi í forsætisráðuneytinu í morgun fóru formennirnir yfir þingmálaskrá, ýmis frumvörp og aðgerðir sem ríkisstjórnin mun ráðast í á 157. löggjafarþingi.

„Áherslur ríkisstjórnarinnar í vetur eru skýrar. Tiltekt og verðmætasköpun, á sama tíma og við hefjumst handa við að styrkja öryggi og innviði Íslands,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

„Við erum að laga ríkisfjármálin með því að hagræða, loka glufum og ná betri stjórn á starfsemi ríkisins. Hagræðingartillögur hafa skilað sér í 100 milljarða uppsafnaðri hagræðingu á tíma fjármálaáætlunar og 2027 verða fyrstu hallalausu fjárlög ríkisins í 10 ár.“

Tiltekt í útlendingamálum og sameiningar stofnana

Á meðal mála sem sérstaklega lúta að tiltekt og umbótum í nýrri þingmálaskrá eru til að mynda frumvarp forsætisráðherra um afnám handhafalauna forsetavalds og frumvarp sem liðka mun fyrir stofnun svokallaðs nefndahúss.

Þá hyggst dómsmálaráðherra ráðast í umfangsmikla tiltekt í útlendingamálum. Þar má nefna afturköllun á alþjóðlegri vernd fyrir fólk sem fremur alvarleg eða síendurtekin brot og afnám á hinni séríslensku 18 mánaða reglu, sem hefur veitt fólki sjálfkrafa dvalarleyfi þegar tafir verða á afgreiðslu mála. Einnig verður lagt fram frumvarp um sameiningu atvinnu- og dvalarleyfa með hertum skilyrðum, sem og frumvarp um uppbyggingu brottfararstöðvar til að uppfylla skuldbindingar Íslands samkvæmt Schengen-samningnum.

Sameiningar- og hagræðingarmál verða jafnframt ofarlega á baugi hjá ríkisstjórninni í vetur. Fyrir dyrum standa sameiningar stofnana, einkum með það fyrir augum að bæta þjónustu og styrkja faglega starfsemi. Þá verður umbótamál um sameiningu sýslumanna endurflutt.

Öryggi og innviðir áfram í öndvegi

Í vetur mun ríkisstjórnin einnig ráðast í stórfellda einföldun regluverks. Þar má nefna umfangsmikla einföldun leyfisferla í orkumálum, sem liðka mun fyrir þjóðhagslega mikilvægum verkefnum á því sviði. Farið verður í mikilvæga einföldun regluverks um erlenda fjárfestingu í nýsköpunarfyrirtækjum, létt verður á jafnlaunavottun auk þess sem félags- og húsnæðismálaráðherra hyggst einfalda og létta verulega á byggingarreglugerð.

Öryggi og innviðir Íslands verða jafnframt áfram í öndvegi. Öryggi á vegum verður aukið með 7 milljarða viðbót í vegabætur strax á næsta ári. Lögreglumönnum verður fjölgað um 50, Landhelgisgæslan styrkt og frumvarp um heimild til að framfylgja nálgunarbanni með notkun ökklabands lagt fram.

„Loks setjum við fókus á neytendur og samkeppnismál í vetur. Atvinnuvegaráðherra boðar aukna neytendavernd og stefnu í neytendamálum. Sömuleiðis verður farið í löngu tímabæra og nauðsynlega heildarendurskoðun löggjafar í kringum lagareldi á Íslandi. Og síðast en ekki síst verður farið í náttúru- og innviðagjald á ferðamannastöðum í eigu ríkisins,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra.

Metnaðarfull samgönguáætlun og böndum komið á skammtímaleigu

Frumvarp um að lífeyrir fylgi launavísitölu verður lagt fram, sem tryggja á að kjör öryrkja og ellilífeyrisþega dragist ekki aftur úr launaþróun. Þá er stefnt að því að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og sköpuð verður lagaumgjörð utan um öryggisvistun, til að tryggja að þeir sem eiga að sæta öryggisráðstöfunum séu vistaðir í viðeigandi úrræði.

Þá stendur til að innleiða símafrí í grunnskólum landsins og tryggja að námsgögn í leik- grunn og framhaldsskólum verði gjaldfrjáls.

Stefnt er að því að gæludýrahald verði leyft í fjöleignarhúsum og réttarvernd fólks á leigumarkaði efld með frumvarpi um skráningarskyldu leigusamninga. Þá verður lagt fram frumvarp um skammtímaleigu (Airbnb), sem miðar að því að koma böndum á slíka starfsemi.

Strax í haust verður svo ný og metnaðarfull samgönguáætlun lögð fram. Í henni verður settur skýr rammi um þau stóru verkefni sem framundan eru – til að mynda Sundabraut. Þá verður forgangsmál að tryggja 48 daga til strandveiða á næsta strandveiðiári. 

„Ríkisstjórnin hefur nú þegar ráðist í umfangsmiklar breytingar til að bæta kjör þeirra verst settu. Við erum rétt að hefja þá vegferð sem stjórnarflokkarnir sömdu um við stjórnarmyndunarborðið og metnaðarfull þingmálaskráin sýnir að við erum hvergi nærri hætt,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Málin sem hér hafa verið nefnd eru aðeins brot af þeim 157 málum sem finna má í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir veturinn.

Þingmálaskráin 157. löggjafarþings í heild