09 september 2025
/
Heilbrigðisráðuneytið
Stafræn þróun í heilbrigðiskerfinu – vegvísir til framtíðar
Yfirgripsmikilli vinnu á vegum heilbrigðisráðuneytisins við formlegt mat á stafrænni þróun og gagnamálum í heilbrigðiskerfinu er lokið og hefur lokaskýrsla verkefnisins nú verið birt. Í skýrslunni eru settar fram tillögur sem miða að skýrari forgangsröðun og samfellu í þjónustu, auknu aðgengi að gögnum og sameiginlegum innviðum sem tryggja skilvirkan og öruggan rekstur. Greiningunni og þeim tillögum sem birtast í skýrslunni er ætlað að vera vegvísir að stefnu til framtíðar.
Sameinuð þróunareining stafrænna lausna
Lykillinn að því að hrinda í framkvæmd þeim úrbótum sem skýrslan fjallar um felst í því að styrkja stjórnhætti stafrænnar heilbrigðisþjónustu. Er lagt til að sett verði á fót ein miðlæg þróunareining stafrænna lausna sem samhæfir á einum stað þróun stafrænnar heilbrigðislausna, styður betur við nýsköpun þróunaraðila á einkamarkaði og þróar stafræna innviði og lausnir. Með þessu er stefnt að því að bæta upplifun notenda, nýta betur fjármuni og jafna aðgengi að stafrænum lausnum um allt land.
Niðurstöður greiningarvinnunnar sýna að mikil tækifæri eru til úrbóta og þörfin brýn. Mikil gróska hefur verið í þróun stafrænna lausna í opinbera heilbrigðiskerfinu á liðnum árum sem og meðal einkaaðila. Í mörgum tilfellum er þetta nýsköpun sem hefur átt sér stað innan einstakra stofnana og lausnirnar þróaðar á þeim grunni. Ójöfn þróunargeta milli stofnana hefur skapað gjá sem vinnur gegn því að hægt sé að innleiða stafrænar lausnir þvert á heilbrigðiskerfið allt sem aftur eykur flækjustig notenda við að nýta sér stafrænar lausnir í kerfinu. Slíkt samræmi er m.a. mikilvæg forsenda þess að tryggja sjúklingum samfellda þjónustu óháð því á hvaða þjónustustigi hún er veitt.
Bætt þjónusta og betri nýting fjármuna
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir mikinn kraft í nýsköpun og þróun stafrænna lausna. Margt gott hafi verið gert í þeim efnum en því miður upplifi notendur, sjúklingar og almenningur gróskuna sem stafrænan frumskóg sem erfitt sé að rata um. Kerfin tali ekki saman og sækja þurfi upplýsingar og þjónustu í gegnum ólík vefsvæði og smáforrit: „Þetta getum við lagað með því að skilgreina þarfir fyrir nýjar lausnir og hvaða skilyrði þær þurfa að uppfylla. Við þurfum að forgangsraða verkefnum með áherslu á að mæta klínískum þörfum með hagsmuni sjúklinga að leiðarljósi. Þá þarf að greiða fyrir aðkomu einkaaðila á markaði. Þetta verður meðal verkefna miðlægrar þróunareiningar stafrænna lausna sem ég legg áherslu á að verði komið á fót sem fyrst. Við getum með þessu bætt þjónustu til muna og samhliða tryggt betri nýtingu fjármuna.“