10 september 2025
/
Heilbrigðisráðuneytið
Drög að frumvarpi tengt breyttu skipulagi heyrnar- og talmeinaþjónustu til umsagnar
Unnið er að breytingum á fyrirkomulagi heyrnar- og talmeinaþjónustu sem til fjölda ára hefur verið á hendi Heyrnar og talmeinastöðvar. Sett verður á fót sérhæfð, þverfagleg þjónustueining innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) sem tekur að mestu við verkefnum Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar sem verður lögð niður. Drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um niðurlagningu Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir margvíslegan ávinning felast í því að fela heilsugæslunni þessi verkefni: „Fólk á öllum aldri á margvísleg erindi við heilsugæsluna og fjöldi skjólstæðinga hennar þarf á þessari þjónustu að halda, ekki síst vegna heyrnarmeina sem er útbreiddur og vaxandi heilsufarsvandi. Því er nærtækt að þekkingin og þjónustan við þennan hóp sé innan vébanda heilsugæslunnar.“ Alma segir að öllu starfsfólki Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar verði boðin vinna á nýrri þjónustueiningu: „Þekking þeirra, menntun og reynsla er afar dýrmæt og mikilvæg forsenda þjónustunnar sem til stendur að byggja upp og efla innan heilsugæslunnar.“
Frumvarpið er unnið í heilbrigðisráðuneytinu og byggir m.a. á tillögum starfshóps sem heilbrigðisráðherra skipaði í júlí 2024 um stefnumótun í heyrnarþjónustu. Gert er ráð fyrir að hin nýja þjónustueining innan HH sinni grunnþjónustu og fræðslu en að sérfræðiþjónusta fari að mestu fram á öðru stigi heilbrigðisþjónustu, þ.e. hjá sjálfstætt starfandi heyrnarfræðingum og framangreindri þjónustueiningu. Ekki er gert ráð fyrir breytingum á þriðja stigs þjónustu sem veitt er á Landspítala sem áfram sinni nýburaskimunum, ígræðsluaðgerðum og öðrum heyrnarbætandi aðgerðum.
Áformað er að breyta umsóknarferli styrkja vegna heyrnartækja og annarra nauðsynlegra hjálpartækja fyrir heyrnarskerta og heyrnarlausa á þann veg að Sjúkratryggingar Íslands annist afgreiðslu slíkra umsókna, líkt og gildir um önnur hjálpartæki. Er markmiðið með því að jafna stöðu hópsins varðandi aðgengi að nauðsynlegum hjálpartækjum.
Markmiðið með því að fella niður lög um Heyrnar- og talmeinastöð nr. 42/2007 samkvæmt þeim frumvarpsdrögum sem nú eru til umsagnar eru:
- Að skapa stjórnvöldum svigrúm til að skýra heildarskipulag heyrnar- og talmeinaþjónustu.
- Að tryggja heyrnalausum, heyrnaskertum, og einstaklingum með heyrnar- og talmein þjónustu á réttu þjónustustigi af viðeigandi sérfræðingum.
- Að tryggja góða og samfellda þjónustu, efla samvinnu fagfólks, stuðla að framþróun þjónustunnar og ná fram samlegðaráhrifum og hagkvæmni.
Ekki er unnt að ná framangreindum markmiðum með breytingu á gildandi lögum um Heyrnar- og talmeinastöð og því nauðsynlegt að fella lögin brott í heild sinni.
Þess má geta að fyrr á þessu ári flutti Heyrnar- og talmeinastöðin í nýlegt húsnæði við Hraunbæt 115 þar sem Heilsugæslan Árbæ er með sína starfsemi.