10 september 2025
/
Innviðaráðuneytið
Opið fyrir umsóknir í Sóknarsjóð fyrir smærri fyrirtæki í Grindavík
Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sóknarsjóð fyrir smærri fyrirtæki í Grindavík. Tilgangur Sóknarsjóðs er að styðja við smærri atvinnurekendur í Grindavík með það að markmiði að horfa megi til framtíðar í rekstri. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00, 1. október 2025. Sóknarsjóður hefur allt að 180 m.kr. til ráðstöfunar.
Í umsóknum skal m.a. koma fram til hvers styrkurinn er ætlaður og hvernig hann muni koma til með að nýtast til áframhaldandi reksturs. Styrkhæf eru fyrirtæki sem voru með starfsemi í Grindavík 10. nóvember 2023 og fullnægja að öðru leyti skilyrðum reglna um Sóknarsjóð.