10 september 2025
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Styrkveitingar til verkefna og viðburða á málefnasviðum atvinnuvegaráðherra haustið 2025
Atvinnuvegaráðuneytið veitir styrki til verkefna og viðburða á málefnasviðum atvinnuvegaráðherra.
Ekki eru veittir styrkir til ríkisstofnana eða sveitarfélaga, einstaklinga, rekstrarstyrkir, ferðastyrkir, styrkir til nefndarsetu eða styrkir til BA/BS, eða meistaraprófa. Þá eru ekki veittir styrkir til bæjarhátíða.
Við úthlutun er m.a. horft til þess hvort verkefnin þyki hafa gildi fyrir starfsemi viðkomandi málaflokks, hvort verkefnið búi yfir sérstöðu eða nýnæmi og hvort markmið og mælikvarðar séu skýrir.
Til að umsókn verði tekin gild skulu henni fylgja eftirtalin gögn:
- Upplýsingar um umsækjanda eða umsækjendur
- Upplýsingar um aðra þátttakendur og samstarfsaðila ef einhverjir eru
- Nafn þess sem annast samskipti við ráðuneytið
- Nákvæm lýsing á verkefni, markmiðum þess og þýðingu fyrir umsækjendur og aðra
- Lýsing á því hvernig árangur verkefnis verði metinn
- Tíma- og verkáætlun
Fjárhagsáætlun þar sem koma m.a. fram upplýsingar um áætlaðan kostnað, tekjur, hlutdeild annarra í kostnaði við verkefnið og styrkfé sem verkefnið hefur hlotið eða hefur sótt um.
Staðfest gögn frá samstarfsaðilum sem og önnur gögn til stuðnings umsókn.
Heildarupphæð sem ráðherra hefur til ráðstöfunar haustið 2025 er 16.000.000 kr, hver einstakur styrkur getur numið allt að 10% heildarupphæð úthlutana eða 1.600.000 kr.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 24. september 2025.
Ráðuneytið mun ekki taka til umfjöllunar umsóknir sem berast utan auglýsts tímafrests eða sem berast eftir öðrum leiðum en í gegnum eyðublaðavef Stjórnarráðsins. Eftir innskráningu með rafrænum skilríkjum þarf að að fara í Eyðublöð og velja viðeigandi eyðublað undir atvinnuvegaráðuneytinu.
Óska má eftir nánari upplýsingum um styrkina gegnum netfangið [email protected]