11 september 2025

/

Dómsmálaráðuneytið

Dómsmálaráðherra og utanríkisráðherra heimsóttu Northern Challenge

{image.Description}
Utanríkisráðherra og dómsmálaráðherra ásamt þáttakendum Northern Challenge fyrr í dag

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra heimsóttu í dag fjölþjóðlegu sprengjueyðingaæfinguna Northern Challenge, sem fram fer hér á landi.

Northern Challenge er ein umfangsmesta fjölþjóðlega æfing sprengjusérfræðinga í Evrópu og sú stærsta innan NATO sem sérhæfir sig í sprengjueyðingu. Æfingin fer fram ár hvert á Íslandi og í henni taka þátt um 400 fulltrúar frá sextán ríkjum, þar á meðal frá Íslandi, Danmörku, Bretlandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Þá taka fulltrúar frá bandarísku alríkislögreglunni þátt í æfingunni og deila reynslu sinni í meðhöndlun sönnunargagna.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra við æfingu Northern Challenge í dag

„Ég er gríðarlega stolt af okkar fólki í Landhelgisgæslunni og það var heiður að fá að heimsækja æfingu þeirra í dag. Northern Challenge sýnir í verki hversu mikilvægt það er að ríki vinni saman í öryggis- og varnarmálum. Hér sameinast sérþekking og reynsla margra þjóða með það að markmiði að tryggja öryggi borgaranna,“ sagði Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra að lokinni heimsókn.

Landhelgisgæslan ber meginábyrgð á framkvæmd Northern Challenge. Æfingin er haldin á vegum séraðgerðasveitar Landhelgisgæslunnar sem sér um skipulagningu, samhæfingu og móttöku þátttakenda.

Ísland virkur þátttakandi í öryggis- og varnarmálum

Með Northern Challenge hefur Landhelgisgæslan skapað vettvang þar sem NATO-ríki og nánir samstarfsaðilar geta æft sig saman og deilt þekkingu þvert á landamæri. Þetta styrkir stöðu Íslands sem virks þátttakanda í öryggis- og varnarmálum.

Markmið æfingarinnar er að samhæfa og styrkja viðbrögð sprengjusérfræðieininga gegn þeim ógnum sem geta komið upp, þar á meðal hryðjuverkum. Sprengjurnar sem þátttakendur fást við á æfingunni eru líkar þeim sem hafa fundist víða um heim og þurfa að vera aftengdar með nákvæmum verklagsreglum. Æfingin er uppfærð ár hvert til að tryggja að æfð séu viðbrögð við nýjustu ógnum sem fyrir hendi.