11 september 2025
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Leiðin áfram í loftslagsmálum: Markmið og forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar kynnt
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson, kynnir áherslur og forgangsaðgerðir ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum og tillögu að landsákvörðuðu framlagi Íslands gagnvart Parísarsamningnum, föstudaginn 12. september kl. 11.
Ráðherra mun á fundinum kynna þær aðgerðir aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum sem koma til framkvæmda á árunum 2025 og 2026. Á fundinum verður einnig kynnt tillaga að nýju landsákvörðuðu framlagi undir Parísarsamningnum til 2035 sem ráðherra hyggst leggja í samráðsgátt stjórnvalda í tvær vikur. Undanfarið hefur verið unnið að því í ráðuneytinu að greina stöðu Íslands í alþjóðlegu samstarfi í loftslagsmálum svo að auka megi gagnsæi í stjórnsýslu loftslagsmála og verður því einnig kynnt leiðrétt landsákvarðað framlag til 2030.
Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum var gefin út og samhliða sett til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda í júní 2024. Síðan þá hefur farið fram frekari greining og forgangsröðun á þeim aðgerðum með það að markmiði að ná sem mestum samdrætti á sem skemmstum tíma.