11 september 2025
/
Heilbrigðisráðuneytið
Ráðherra heimsótti Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra heimsótti í liðinni viku Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, skoðaði aðstæður stofnunarinnar á Ísafirði þar sem er rekin sjúkradeild og heilsugæsla, auk þess að heimsækja hjúkrunarheimilið Eyri og hjúkrunarheimilið Berg í Bolungarvík. Ráðherra nýtti jafnframt ferðina vestur til að heimsækja höfuðstöðvar Kerecis á Ísafirði.
Með ráðherra í för var aðstoðarmaður hennar, Jón Magnús Kristjánsson bráðalæknir. Heimsóknin hófst á fundi þeirra með framkvæmdastjórn stofnunarinnar, Lúðvíki Þorgeirssyni, forstjóra, Elísabetu Samúelsdóttur, fjármálastjóra, Erling Aspelund, framkvæmdastjóra mannauðs, Hildi Elísabetu Pétursdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar og Súsönnu Björgu Ástvaldsdóttur framkvæmdastjóra lækninga. Í heimsókninni til Bolungarvíkur hitti ráðherra Auði Helgu Ólafsdóttur, deildarstjóra hjúkrunarheimila á norðursvæði stofnunarinnar, ásamt öðru starfsfólki Bergs og íbúanna þar.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er með starfsstöðvar á Ísafirði, Patreksfirði, í Bolungarvík og á Þingeyri. Einnig rekur stofnunin heilsugæslusel og sinnir heimahjúkrun á Bíldudal, Flateyri, í Súðavík og Tálknafirði. Eins og fram kom á fundi ráðherra með framkvæmdastjórninni er víða þörf fyrir viðhald og endurbætur á húsnæði stofnunarinnar og er unnið að slíkum verkefnum í samstarfi við Framkvæmdasýslu ríkisins.
Þann 1. janúar síðastliðinn tók gildi nýtt skipurit Heilbrigðisstofnunar Vesturlands þar sem stjórnskipulag stofnunarinnar var einfaldað með áherslu á aukna skilvirkni og skýra faglega og rekstrarlega ábyrgð.
Alma segir það gefa auga leið að miklar áskoranir fylgi því að veita heilbrigðisþjónustu á svæði sem er jafn landfræðilega krefjandi og Vestfirðirnir. „En það er líka augljóst að það er mikill kraftur í stjórnendum og starfsfólki stofnunarinnar og geta til að finna leiðir og lausnir til þess að þjóna íbúum sem best. Það má t.d. sjá af útsjónarsemi við að laða til starfa erlenda lækna því læknamönnun hefur löngum verið mikil áskorun en gengur vel núna. Ég nefni líka vettvangsliðana og störf þeirra sem skipta gríðarlega miklu máli til að tryggja öryggi íbúa, ekki síst þegar veður eru vond og samgöngur ótryggar. Fyrst og fremst finnst mér gott að sjá hvað það er samhentur og hress hópur sem starfar hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og það endurspeglaðist einmitt vel í síðustu könnun stofnunar ársins þar sem HVEST hlaut hæstu einkunn til þessa.“