11 september 2025
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Úthlutun fjárfestingastuðnings í kornrækt 2025
Atvinnuvegaráðherra úthlutaði fyrr í sumar fjárfestingastuðningi í kornrækt, samtals að fjárhæð 229,5 m.kr. Stuðningurinn er veittur til fjárfestinga í kornþurrkun, korngeymslum og tilheyrandi tækjabúnaði og er einn þáttur aðgerðaáætlunar þar sem gert er ráð fyrir að verja um tveimur milljörðum króna til átaks í kornrækt á árunum 2024-2028.
Alls bárust 13 umsóknir, þar af 8 framhaldsumsóknir frá þeim aðilum sem fengu úthlutað á síðasta ári og 5 frumumsóknir vegna verkefna sem ekki hafa fengið stuðning áður.
Fjármunum var úthlutað á grundvelli forgangsröðunar þar sem m.a. var horft til afkastagetu, nýtingar endurnýjanlegrar orku, eignarhalds bænda og fyrirætlana um þjónustu við aðra bænda. Úthlutað var til 11 verkefna sem eru dreifð vítt um landið og hafa ýmist hafið starfsemi eða munu hefja hana á árinu.
|
Fjárfestingastuðningur í kornrækt 2025, úthlutun |
||
|
Umsækjandi |
Svæði |
Samþykktur styrkur kr. |
|
Kornskemman ehf. |
Laugaland Eyjafirði |
41.823.084 |
|
Kornþurrkun Austurlands ehf. |
Egilsstaðir |
34.687.810 |
|
GG2023 ehf. |
Húsavík |
16.805.999 |
|
Flateyjarbúið |
Flatey Hornafjörður |
13.927.723 |
|
Stórólfur ehf. |
Hvolsvöllur |
38.152.569 |
|
Góður Biti |
Borgarfjörður |
19.448.093 |
|
Gullkorn Þurrkun |
Laugagerði Snæfellsnes |
18.577.188 |
|
Þreskir |
Vallhólmi Skagafirði |
17.538.733 |
|
Grís og Flesk |
Gunnarsholt Rangárvöllum |
17.001.832 |
|
Hellisbúið ehf. |
Kolholtshellir Flóa |
8.973.197 |
|
Hans-verk ehf. |
Leirur Eyjafjöll |
2.563.771 |
|
Samtals |
|
229.500.000 |