12 september 2025
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Áformað að afnema áminningarskyldu í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins
Áform um breytingar á starfsmannalögum hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Áformað er að afnema áminningarskyldu sem undanfara uppsagnar, annars vegar, og lausnar um stundarsakir, hins vegar. Jafnframt eru áform um breytingar á ákvæðum starfsmannalaga um setningu í embætti, auglýsingaskyldu og greiðsludag launa.
Samkvæmt fjármálaáætlun áranna 2026-2030 er stefnt að endurskoðun lagaramma um mannauðsmál ríkisins. Markmið slíkrar endurskoðunar eru umbætur í ríkisrekstri og bætt þjónusta við samfélagið. Við endurskoðun lagaramma um mannauðsmál ríkisins er einna helst að líta til laganna um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, en þau voru á sínum tíma sett með það í huga að færa réttindi starfsfólks ríkisins nær því sem starfsfólk á almennum vinnumarkaði bjó við. Frekari skref í þá átt voru síðan stigin með samkomulagi aðila vinnumarkaðarins um jöfnun lífeyrissréttinda árið 2016. Við kjarasamningsborðið snúa kröfur stéttarfélaganna einkum að því að jafna laun á milli markaða og því er eðlilegt að skoða í hvaða tilvikum tilefni er til að jafna einnig réttindi og skyldur á milli markaða.
Mikilvægt er að samhliða vandaðri stjórnun mannauðsmála geti stofnanir ríkisins skapað starfsfólki öruggt og heilsusamlegt starfsumhverfi. Áformaðar breytingar eru liður í því. Ákvörðun um uppsögn og lausn um stundarsakir verða áfram stjórnvaldsákvarðanir. Þannig er tryggt að ákvarðanir munu áfram þurfa að byggja á málefnalegum sjónarmiðum sem samræmist réttmætisreglu stjórnsýslulaga og að meðalhófs verði gætt. Starfsfólk ríkisins er í lykilhlutverki við að veita góða opinbera þjónustu og mikilvægt að stofnanir ríkisins laði að og búi yfir hæfu starfsfólki til þess að sinna opinberri þjónustu. Þannig næst fram hagkvæmni í ríkisrekstri og bætt þjónusta samfélaginu til heilla.
Áformin má nálgast í samráðsgátt stjórnvalda og frestur til umsagnar er til og með 26. september nk.