12 september 2025

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Breytingar á uppgjörsreglum virðisaukaskatts o.fl. til skoðunar

{image.Description}
Hari

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda upplýsingar og drög að breytingatillögum á reglum um uppgjör virðisaukaskatts o.fl. Miðað er við að breytingarnar geti tekið gildi 1. janúar 2027.

Nánar tiltekið er um að ræða breytingar á reglum um uppgjörstímabil og gjalddaga virðisaukaskatts og uppgjör á virðisaukaskatti vegna innflutnings vöru fyrir skattskylda starfsemi. Enn fremur er til skoðunar hvort tilefni sé til að breyta gildandi reglum um greiðslufrest aðila, sem skráðir eru á virðisaukaskattsskrá, á öðrum aðflutningsgjöldum til samræmis við breytingar á uppgjöri og skilum á virðisaukaskatti.

Ráðuneytið hefur, í samvinnu við Skattinn, haft uppgjörsreglurnar til athugunar. Markmið athugunarinnar var m.a. að kanna hvort mögulegt sé að einfalda fyrirkomulag við uppgjör á virðisaukaskatti með margháttaðan ávinning í huga. Má þar nefna að bæta lausafjárstýringu ríkissjóðs og draga þannig úr vaxtakostnaði hans, einfalda framkvæmd skattálagningar, draga úr möguleikum á undanskotum og auka gæði gagna um veltu í hagkerfinu. Athugunin fól m.a. í sér að rýna gildandi regluverk hér á landi og skoða regluverk um sama efni á öðrum Norðurlöndum og í ríkjum Evrópusambandsins, þ.m.t. reglur um uppgjör á virðisaukaskatti í tolli.

Aðilar, sem telja sig málið varða, eru hvattir til að senda inn umsögn eða ábendingu. Skilafrestur er til og með 10. október 2025.