12 september 2025

/

Innviðaráðuneytið

Leiðbeiningar gefnar út um opinbera grunnþjónustu

{image.Description}
Stigskipting opinberrar þjónustu.

Innviðaráðuneytið hefur í samvinnu við Byggðastofnun gefið út leiðbeiningar um opinbera þjónustu og jöfnun aðgengis. Í leiðbeiningunum eru settar fram skilgreiningar um opinbera þjónustu sem ríki og sveitarfélög veita ásamt ítarlegri greinargerð.

Opinber grunnþjónusta er skilgreind sem þjónusta opinberra aðila, þ.e. ríkis og sveitarfélaga, sem er aðgengileg öllum íbúum landsins og nauðsynleg til að skapa fullnægjandi búsetuskilyrði um land allt. Opinber grunnþjónusta er forsenda þess að fólk geti stundað atvinnu, sótt menntun og frístundastarf og sinnt öðrum daglegum verkefnum og þörfum.

Skipulag grunnþjónustu miðast að því að takmarka þörf á ferðalögum íbúa til að sækja þjónustuna og hefur þannig jákvæð áhrif á öryggi og tækifæri íbúa til þátttöku í samfélaginu og lágmarkar kostnað og neikvæð umhverfisáhrif.

Aðgengi að opinberri grunnþjónustu og skipulag hennar tekur mið af þörfum, réttindum og öryggi íbúa. Íbúar eiga jafnframt að geta notið þjónustunnar með sem minnstum tilkostnaði, bæði hvað varðar tíma og fjármuni og lágmarka ber samfélagslegan kostnað.

Flokkun grunnþjónustu

Í leiðbeiningunum segir að grunnþjónustu megi flokka með eftirfarandi hætti:

  1. Lögskyld þjónusta sem opinberum aðilum er skylt að veita.
  2. Lögheimil þjónusta og þjónusta sem hefð hefur skapast um þrátt fyrir að ekki sé mælt fyrir um inntak þjónustu eða lágmarksviðmið í lögum. 
  3. Valkvæð verkefni sem stjórnvöld ákveða að vinna eða veita íbúum stuðning eða aðstoð.
  4. Aðrir þjónustuþættir sem tryggja jafnræði og jafnrétti meðal íbúa landsins.

Verkefnið var unnið í takt við aðgerðaáætlun gildandi byggðaáætlunar, aðgerð A.15 Opinber grunnþjónusta og jöfnun aðgengis.