12 september 2025

/

Innviðaráðuneytið

Styrkir stjórnvalda hvetja til nýsköpunar og úrbóta í netöryggi

{image.Description}
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra flytur ávarp á netöryggisráðstefnunni.

Eyvör NCC-IS, íslenska hæfnissetrið í netöryggi, stóð í gær fyrir ráðstefnu í Grósku undir yfirskriftinni Netöryggi: Styrkir og sóknarfæri. Markmiðið var að sýna fram á hvernig samvinna ólíkra aðila og opinberir styrkir geta örvað nýsköpun og eflt netöryggi fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga og skilað þannig áþreifanlegum ávinningi.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra ávarpaði ráðstefnuna og Luca Tagliaretti, framkvæmdastjóri Hæfniseturs Evrópu í netöryggi (ECCC) flutti erindi. Loks fóru fram örkynningar á framgangi 28 fjölbreyttra verkefna sem hafa hlotið netöryggisstyrki frá Eyvöru.

Í ávarpi sínu sagði Eyjólfur að hann myndi sem ráðherra netöryggismála leggja áherslu á að málaflokkurinn verði áfram í forgangi.

„Við vitum öll að stafrænir innviðir eru nú orðnir jafn mikilvægir fyrir þjóðina og samgöngu- og orkuinnviðir. Þeir styðja við daglegt líf okkar, efnahag og lýðræðislegt samfélag. Þegar þessir innviðir verða fyrir truflunum eða árásum getur það haft afdrifarík áhrif. Það er því skylda okkar að tryggja eins og kostur er, að Ísland sé búið undir þessar áskoranir. Við erum hins vegar lipur þjóð sem getur brugðist hratt við, nýtt mannauð sinn og skapað nýjar lausnir. Þetta er ekki markmið sem við náum í einni svipan. Það krefst markvissrar stefnumótunar, fjárfestinga og alþjóðlegrar samvinnu,“ sagði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra í ávarpi sínu.

Ráðherra sagði að Eyvör, íslenska hæfnisetrið fyrir netöryggi, standi á tímamótum þótt ung sé. Tveggja ára reynsla væri komin á samstarfið og fjármagnaður samningur um næstu tvö ár liggi fyrir. 

„Fjarskiptastofa hefur tekið verkefnið föstum tökum á síðustu mánuðum sem nýr leiðandi aðili í samstarfinu og ljóst er að netöryggisstyrkir Eyvarar hafa þegar sannað gildi sitt. Ég trúi því að með sameiginlegu átaki getum við tryggt, að Ísland verði fyrirmynd í netöryggismálum í allri Evrópu. Gegnir Eyvör og ykkar framlag þar mikilvægu hlutverki,“ sagði ráðherra.