14 september 2025

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Streymt frá XIV. Umhverfisþingi

{image.Description}

Mikill áhugi er á Umhverfisþingi sem Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur boðað til dagana 15. og 16. september.

Hægt verður að fylgjast með fyrri hluta dagskrár 15. september í gegnum streymi á vef Stjórnarráðsins, sem og pallborðsumræðum um hafið, sem fram fara að morgni dags 16. september.

Þetta er fjórtánda Umhverfisþingið sem haldið er og er þingið umfangsmeira en undanfarin ár. Meginþemu þingsins að þessu sinni verða líffræðileg fjölbreytni, loftslagsmál og hafið. Með þinginu vill Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra efla samtal við almenning, félagasamtök og hagaðila um umhverfismál, með áherslu á framangreind þemu. Því hefur skráning verið opin öllum. Umhverfisþingi er ætlað að ná fram uppbyggilegu samtali um viðfangsefni þingsins og skapa grundvöll að framhaldsvinnu stjórnvalda í málaflokkunum. 

Aðalfyrirlesari þingsins, er Thomas Halliday, fornlíffræðingur, steingervingafræðingur og höfundur bókarinnar Otherlands, sem hefur í rannsóknum sínum beint athyglinni að því hvernig jörðin hefur náð sér eftir síðustu fjöldadauða. 

Þá mun Ingibjörg Þórðardóttir eiga samtal við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, um mikilvægi umhverfis- og loftslagsmála. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mun síðan afhenda náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti áður en streymisdagskrá lýkur 15. september.

 

Umhverfisþing