14 september 2025
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Spennandi samgönguvika framundan
Margir góðir viðburðir verða í Evrópskri samgönguviku sem hefst þriðjudaginn 16. september og stendur til 22. september, en þema vikunnar að þessu sinni er Samgöngur fyrir öll.
Frá árinu 2002 hafa borg og bæjarfélög á Íslandi tekið þátt í samstilltu átaki sveitarfélaga í Evrópu til að ýta undir sjálfbærar samgöngur. Umhverfis- orku og loftslagsráðuneytið hefur umsjón með vikunni á Íslandi.
Markmið vikunnar er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem eru allt í senn eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft. Með þema vikunnar að þessu sinni er þá lögð áhersla eá að skapa aðgengilegt og öruggt samfélag fyrir alla – óháð hreyfigetu.
Viðburðir verða haldnir á vegum félagasamtaka og sveitarfélaga, en nálgast má upplýsingar um dagskrá vikunnar hér á vef Stjórnarráðsins, á heimasíðum sveitarfélaganna, auk Facebook síðu vikunnar.
Meðal þeirra viðburða sem eru á dagskrá að þessu sinni má nefna:
Aðgengisstroll sem Akureyrarbær stendur fyrir miðvikudaginn 17. september í samstarfi við samtökin Sjálfsbjörgu á Akureyri og Virk efri ár.
Þá býður Orkuveitan til Auðlindahrings í Elliðaárdalnum þann 17. september í tilefni að samgönguviku.
Loks má nefna að fimmtudaginn 18. september standa Reykjavíkurborg, Vegagerðin, Betri samgöngur og Strætó BS fyrir málþinginu Fjölbreyttar samgöngur fyrir öll þar sem fjallað verður um ýmsar og óvæntar hliðar samgangna.
Vikan endar svo á Bíllausa deginum, 22. september, þegar almenningur er hvattur til þess að skilja bílinn eftir heima og til að auðvelda það verður frítt í landsbyggðarstrætó og í strætó á höfuðborgarsvæðinu.