15 september 2025

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Forstöðumenn í lykilhlutverki

{image.Description}

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra sagði í ávarpi sínu á fundi með forstöðumönnum stofnana að þeir væru í lykilhlutverki við innleiðingu á stefnu og áætlanagerð ríkisstjórnarinnar og við að leiða breytingar og umbætur í þjónustu. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, sem heldur úti stjórnendasetri ríkisins, stóð á dögunum fyrir fundi með forstöðumönnum en fundurinn er hluti af fræðsluröð sem ætlað er að efla stjórnun og auka árangur og eftirfylgni með stefnu ríkisstjórnarinnar hjá stofnunum ríkisins.

Daði Már fjallaði í ávarpi sínu á fundinum um það sameiginlega verkefni ríkisstofnana að veita framúrskarandi þjónustu fyrir íslenskt samfélag og hversu mikilvægt væri að hafa skýra stefnu um opinbera þjónustu. Hliðarskilyrði væri ávallt að skila afgangi af rekstri og að því skilyrði uppfylltu teldist opinber þjónusta sjálfbær.

Á fundinum var meðal annars farið yfir áherslur í ríkisrekstri fyrir árið 2026, sem ríkisstjórnin hefur samþykkt. Áherslurnar snúa að bættri þjónustu og hagkvæmari ríkisrekstri með einfaldari stjórnsýslu og hagræðingu í rekstri.