15 september 2025
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Heildarendurskoðun laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki
Heildarendurskoðun laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki stendur nú yfir, í samræmi við ákvæði laganna um að endurskoðun skuli lokið fyrir 1. janúar 2027. Endurskoðunin er unnin í samvinnu fjármála- og efnahagsráðuneytisins og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Fyrr á árinu var skipaður starfshópur um endurskoðunina undir forystu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Vinnu við endurskoðunina er skipt í tvo áfanga. Í fyrri áfanganum er áhersla lögð á að bæta laga- og regluverk um framkvæmd, umgjörð og skilyrði stuðningsins. Stefnt er að því að leggja fram frumvarp með tilheyrandi breytingum á haustþingi 2025. Á sama tíma er unnið að því að hraða og bæta verklag við yfirferð umsókna og eftirlit í samvinnu við Rannís og Skattinn. Í seinni áfanganum verður sjónum beint að stefnumótun með hliðsjón af umfangi kerfisins og samspil við önnur stuðningskerfi ríkisins á sviði rannsókna og þróunar. Gert er ráð fyrir að frumvarp þess efnis verði lagt fram á haustþingi 2026.
Afar mikilvægt er að stuðningurinn sé markviss og skili ávinningi fyrir íslenskt efnahagslíf, ekki síst í ljósi mikils útgjaldavaxtar. Árið 2019 námu útgjöld vegna kerfisins 3,1 ma.kr. en áætlað er að þau nemi 18,6 ma.kr. árið 2026, sem jafngildir sexföldun.
Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) hafa bent á að skattalegur stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki mælist hár á Íslandi í samanburði við OECD-ríki. Á sama tíma benda þau á að auka þurfi skilvirkni kerfisins, m.a. með hliðsjón af mikilli útgjaldaaukningu. Þá er mælt með að skýra og skerpa á skilyrðum fyrir stuðningi, auka eftirlit og varnir gegn misnotkun ásamt því að tryggja sjálfbærni kerfisins til lengri tíma til að hámarka efnahagslegan ávinning.
Endurskoðunin felur í sér samanburð við sambærileg erlend stuðningskerfi, skoðun á straumum og stefnum í stuðningskerfum, rýni á framkvæmd og eftirliti auk mats á ávinningi og heildarkortlagningu stuðningskerfis rannsókna, þróunar og nýsköpunar.
Rannsóknir, þróun og nýsköpun gegna lykilhlutverki við að viðhalda og auka velsæld. Stjórnvöld leggja því ríka áherslu á að styðja vel við vöxt hugverkaiðnaðar, nýsköpun og tækni í samræmi við stjórnarsáttmála.