15 september 2025

/

Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Nýtt fjárfestingaátak hjá Nýsköpunarsjóðnum Kríu

{image.Description}
Daniel Dan

Nýsköpunarsjóðurinn Kría (NSK) hefur opnað fyrir umsóknir í nýtt fjárfestingaátak sem miðar að því að fjárfesta í sprotafyrirtækjum snemma á þróunarferli þeirra. Viðskiptahugmyndin sem félagið byggir á þarf að vera vænleg til vaxtar og útflutnings, félagið íslenskt og með starfsemi á Íslandi. Þá er það til framdráttar að lykilteymi félagsins skipi fjölbreyttur hópur með bakgrunn, reynslu og þekkingu sem nýtist vel við framgang félagsins. Félög af landsbyggðinni eru sérstaklega hvött til að sækja um fjárfestingu.  

Stefnt er að því að fjárfesta í 10-12 félögum og verður fjárfesting í hverju félagi á bilinu 20-30 milljónir króna. Ófrávíkjanlegt skilyrði er mótframlagsfjárfesting frá öðrum fjárfestum fyrir að lágmarki sömu fjárhæð og NSK fjárfestir.

Allar nánari upplýsingar um átakið og umsóknarferlið má finna á vef NSK.

Kynningarfundir um fjárfestingarátakið verða haldnir á Akureyri, í Reykjavík og með rafrænum hætti. Fyrsti kynningarfundurinn fer fram hjá DriftEA á Akureyri þann 25. september kl. 12:00. Næsti fundur verður haldinn í Fenjamýri í Grósku í Reykjavík þann 26. september kl. 13:00. Að auki verður haldinn rafrænn fundur þann 28. september sem og rafrænn fundur fyrir enskumælandi þann 30. september. Allar nánari upplýsingar um viðburðina má finna hér.

Nánar um Nýsköpunarsjóðinn Kríu

Í frumvarpi sem samþykkt var í júní 2024 voru Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins (NSA) og Kría – sprota- og nýsköpunarsjóður, sameinaðir í nýjan sjóð undir heitinu Nýsköpunarsjóðurinn Kría. Nýsköpunarsjóðnum Kríu er ætlað að veita stuðning við nýsköpun í formi fjárfestinga og mun sjóðurinn geta beitt fjölbreyttum aðferðum við fjárfestingu í samræmi við stöðu fjármögnunarumhverfis og stefnu stjórnvalda hverju sinni. Sjóðnum er ætlað að ná til sprota- og nýsköpunarfyrirtækja, vísisjóða og annarra aðila, svo sem þeirra sem vinna að nýskapandi lausnum við samfélagslegum áskorunum, sjálfbærni og grænum umskiptum.