15 september 2025

/

Utanríkisráðuneytið

Ráðherra styrkti böndin á Grænlandi og fylgdist með varnaræfingu

{image.Description}
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, Tore O. Sandvik, varnarmálaráðherra Noregs, og Troels Lund Poulsen, varnarmálaráðherra Danmerkur fylgjast með varnaræfingunni Arctic Light 2025 úti fyrir ströndum Grænlands.

Heimsókn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttir utanríkisráðherra til Grænlands lauk í dag en hún var mikilvægur liður í samstarfi Íslands og Grænlands hvað varðar norrænt samráð um öryggis- og varnarmál. Þá átti utanríkisráðherra tvíhliða fund með Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, þar sem málefni norðurslóða, áskoranir sem svæðið stendur frammi fyrir og tækifæri til frekara samstarfs ríkjanna í ört breytilegum heimi var til umræðu. 

Á Grænlandi fylgdist ráðherra auk þess með alþjóðlegu varnaræfingunni Arctic Light 2025 ásamt varnarmálaráðherrum Norðurlandanna, en þar taka þátt yfir 550 hermenn frá fjölda Atlantshafsbandalagsríkja, þar á meðal Frakklandi, Þýskalandi, Svíþjóð og Noregi. Æfingin stendur til 19. september og beinist að fjölbreyttum verkefnum á norðurslóðum, meðal annars björgun á sjó, viðbrögðum við mengunarslysum og vernd mikilvægra innviða. Markmið æfingarinnar er að efla sameiginlegt viðbragðshæfi bandalagsríkja í Norður-Atlantshafi og á norðurslóðum.

Í tengslum við æfinguna funduðu ráðherrarnir um þróun öryggismála á norðurslóðum, mikilvægi þess að efla eftirlit og bæta viðbragðsgetu á svæðinu með skilvirkum hætti. 

„Það er forgangsmál að rækta tengslin við Grænland, okkar góðu og kæru vinaþjóð til áratuga, og á góðum fundi með grænlenska utanríkisráðherranum ræddum við einmitt sóknarfærin í okkar nána samstarfi,“ segir Þorgerður Katrín. „Þá gafst sömuleiðis gott tækifæri í heimsókninni til að ná þýðingarmiklum samtölum við okkar nánustu granna þ.e. Dani, Grænlendinga og Norðmenn um þróun öryggismála á norðurslóðum og nauðsynlegan viðbúnað á svæðinu.“ 

Þá gaf heimsóknin Þorgerði Katrínu einnig tækifæri til að hitta Íslendinga í Nuuk á meðan hún dvaldi á Grænlandi.