15 september 2025
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfisþing - streymi frá pallborðsumræðum um hafið
Umhverfisþing stendur nú yfir í Hörpu og hægt er að fylgjast með í streymi pallborðsumræðum um hafið sem fram fara að morgni dags 16. september, en útsending frá streymi hefst kl. 9:20. Það er Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, sem boðar til þingsins sem er fjórtánda Umhverfisþingið sem haldið er.
Umhverfisþingið í ár er umfangsmeira en þing undanfarinna ár og eru meginþemun að þessu sinni líffræðileg fjölbreytni, loftslagsmál og hafið.
Með þinginu vill Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra efla samtal við almenning, félagasamtök og hagaðila um umhverfismál, með áherslu á framangreind þemu. Því hefur skráning verið opin öllum. Umhverfisþingi er ætlað að ná fram uppbyggilegu samtali um viðfangsefni þingsins og skapa grundvöll að framhaldsvinnu stjórnvalda í málaflokkunum.
Pallborðsumræðurnar skiptast í tvennt:
Lífríki hafsins og vernd hafsvæða — Pallborðsumræður um tengsl verndunar hafsvæða við þróun lífríkis hafsins og auðlindir þess.
Þátttakendur í pallborði:
- Dr. Chris McOwen sjávarlíffræðingur hjá Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP)
- Dr. Sian Prior, sjávarlíffræðingur. Prior hefur starfað fyrir og veitt ráðgjöf til fjölda umhverfisverndar- og hafverndarhópa, m.a. Clean Arctic Alliance (Seas At Risk), the Antarctic & Southern Ocean Coalition og WWF
- Dr. Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir, forstöðumaður rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Vestfjörðum
- Hrefna Karlsdóttir, sérfræðingur hjá Samtökum fyrirtækja í Sjávarútvegi, í fiskveiðistjórn og samningum við erlend ríki
- Dr. Freydís Vigfúsdóttir, líffræðingur og sérfræðingur í umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytinu
Skyldan til að vernda hafið — Pallborðsumræður um framkvæmd hafverndar, árangursríka umhverfisvernd í hafi og lagalega þróun á því sviði.
Þátttakendur í pallborði:
- Samantha Robb, lögfræðingur í hafréttardeild Ocean Vision Legal. Hún hefur bakgrunn í alþjóðarétti, alþjóðlegum hafrétti og mannréttindarétti
- Rui Martins, héraðsstjóri hafmála á Azoreyjum
- Björn Helgi Barkarson, umhverfisfræðingur og skrifstofustjóri í umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytinu
- Dr. Snjólaug Árnadóttir, dósent og doktor í hafrétti við Háskólann í Reykjavík