16 september 2025

/

Innviðaráðuneytið

Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 1. október – dagskrá

{image.Description}

Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn miðvikudaginn 1. október nk. á Hilton Reykjavík Nordica í Reykjavík. Á fundinum mun Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra flytja ávarp og ársskýrsla sjóðsins kynnt. Fundarstjóri er Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs.

Dagskrá fundarins:

  • Setning
    Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs 
  • Ávarp ráðherra
    Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra
  • Ársskýrsla Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2024
    Guðni Geir Einarsson, sérfræðingur hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
  • Málaflokkur fatlaðs fólks – staða á rekstri þjónustu
    Arnar Haraldsson, HLH ráðgjöf 

Til fundarins eru boðaðir framkvæmdastjórar sveitarfélaga eða staðgenglar þeirra, fulltrúar samtaka sveitarfélaga og aðrir samstarfsaðilar Jöfnunarsjóðs. Fundurinn verður í sal H-I á 2. Hæð og hefst kl. 16. Áætlað er að fundinum ljúki um kl. 17:30.