17 september 2025

/

Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Utanríkisráðuneytið

Fríverslunarsamningur EFTA og Mercosur undirritaður

{image.Description}
LUCIANASPOSITO_COM
Að lokinni undirrituninni í Ríó de Janeiro í gær.

Fríverslunarsamningur milli EFTA-ríkjanna fjögurra, Íslands, Noregs, Liechtenstein og Sviss, og Mercosur-ríkjanna, sem samanstanda af Argentínu, Brasilíu, Paragvæ og Úrugvæ, var undirritaður við hátíðlega athöfn í Ríó de Janeiro í gær. 

„Þessi samningur hefur mikla þýðingu fyrir hagsmuni okkar en hann tryggir aðgang fyrir íslenskar afurðir inn á stærsta markaðssvæði Suður-Ameríku, sem telur yfir 270 milljónir íbúa,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Þá eflir hann tengsl okkar og hinna EFTA-ríkjanna við Mercosur-ríkin, stuðlar að fyrirsjáanlegum og reglubundnum alþjóðaviðskiptum og styður þar með við alþjóðaviðskiptakerfið sem er okkur svo mikilvægt.“

Í samningnum felst m.a. að tollar á allar helstu útflutningsafurðir Íslands, þar á meðal sjávarafurðir, falla niður, annað hvort í áföngum eða strax við gildistöku. Í samningnum er einnig að finna ákvæði er lúta að vernd líffræðilegrar fjölbreytni, sjálfbærum landbúnaði og réttindum launafólks, auk sérstakra ákvæða gegn skógareyðingu.

Samningurinn verður næst lagður fyrir þjóðþing ríkjanna til fullgildingar og tekur gildi að því ferli loknu.

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, undirritaði samninginn fyrir hönd Íslands í fjarveru Þorgerðar Katrínar.