22 september 2025

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Auglýst eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála

{image.Description}
Hari

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála

Við val verkefna sem hljóta styrk úr þróunarsjóði innflytjendamála árið 2025 verður áhersla lögð á verkefni sem ná til:

  • Virkrar notkunar íslensku í gegnum félagslega viðburði til stuðnings við hefðbundið tungumálanám. Áhersla er lögð á verkefni fyrir ungmenni á framhaldsskólaaldri og fyrir fullorðið fólk. 
  • Þátttöku innflytjenda og innlendra á jafningjagrunni, m.a. með því að stuðla að lýðheilsu innflytjenda og virkri þátttöku þeirra í félagasamtökum og félagsstarfi. 
  • Verkefna sem ætlað er að auka skilning og samkennd milli innlendra og innflytjenda á vinnustöðum eða í framhalds- og háskólum, svo sem með félagsvinaverkefnum og menningar- og tungumálabrúarsmíði. 

Félags- og hagsmunasamtök innflytjenda eru sérstaklega hvött til þess að sækja um.

Styrkir verða veittir einstaklingum, félögum, samtökum og opinberum aðilum. Styrkir geta að hámarki numið 75% af áætluðum heildarkostnaði verkefnis. Unnt er að sækja um jafnt á íslensku sem og ensku.

Umsóknarfrestur er til og með 19. október 2025.

Umsókn sem berst eftir að umsóknarfrestur er liðinn verður ekki tekin til umfjöllunar.

Frekari upplýsingar fást í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu í síma 545 8100 og með tölvupósti á netfangið [email protected].

Hlutverk þróunarsjóðs innflytjendamála er að styðja þróunarverkefni og efla rannsóknir á sviði málefna innflytjenda með það að markmiði að auðvelda gagnkvæma inngildingu innflytjenda og íslensks samfélags.