22 september 2025

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Samráðsgátt: Ný stofnun sem sér um framkvæmd öryggisráðstafana

{image.Description}
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur birt frumvarp í samráðsgátt stjórnvalda sem fjallar um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn. Í frumvarpinu er lagt til að nýrri stofnun verði komið á fót sem sjái um framkvæmdina. Heiti hennar verði Miðstöð um öryggisráðstafanir.

Ekki hafa áður verið til heildstæð lög um framkvæmd öryggisráðstafana hér á landi. Frumvarpið er hluti af afar umfangsmikilli vinnu stjórnvalda í málaflokknum.

„Svo árum skipti hefur verið ákall um að stjórnvöld nái utan um þennan málaflokk. Nú höfum við gengið í verkið. Loksins erum við að ná heildstætt utan um hóp fólks sem þarf sértæk úrræði – úrræði sem hingað til hefur skort,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

„Nýja stofnunin mun gjörbreyta landslaginu. Við stöndum þar bæði vörð um mannréttindi og réttláta málsmeðferð þeirra einstaklinga sem um ræðir – og gætum um leið að öryggi almennra borgara.“

Fjármagn þegar tryggt

Markmiðið með frumvarpinu er að bæta lagaumhverfi og framkvæmd öryggisráðstafana og gera úrbætur í málefnum einstaklinga sem með dómsúrlausn er gert að sæta slíkum ráðstöfunum.

Markmiðið er þannig meðal annars að stuðla að því að framkvæmd öryggisráðstafana sé í samræmi við mannréttindi og að réttaröryggi þeirra sem sæta slíkum ráðstöfunum sé tryggt. Sömuleiðis að öryggisráðstafanir varni því að viðkomandi verði sjálfum sér eða öðrum að skaða.

Þá er markmiðið að sú þjónusta sem veitt er samhliða öryggisráðstöfunum stuðli að aukinni hæfni og virkri þátttöku þeirra sem þeim sæta og að þeir fái viðeigandi stuðning, þjálfun og meðferð.

Fjármagn til uppbyggingar og reksturs nýju stofnunarinnar hefur þegar verið tryggt.

Margra ára undirbúningur

Mikið samráð var viðhaft við vinnslu frumvarpsins innan Stjórnarráðsins og við stofnanir, hagsmunasamtök og fjölmarga aðila. Þá liggur margra ára undirbúningsvinna að baki því að ná heildstætt utan um málaflokkinn.

Gert er ráð fyrir að félags- og húsnæðismálaráðherra mæli fyrir frumvarpinu í nóvember næstkomandi. Á þingmálaskrá haustsins er einnig að finna frumvarp Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra, sem snýr að breytingum á þeim kafla í almennum hegningarlögum sem fjallar um öryggisráðstafanir. Þá er á þingmálaskránni frumvarp til laga um barnavernd sem Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, mælir fyrir og tengist sömuleiðis vinnu stjórnvalda í málaflokknum.