23 september 2025

/

Dómsmálaráðuneytið

Embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum laust til umsóknar

{image.Description}
Golli

Auglýst er laust til umsóknar embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum. Leitað er að öflugum og framsýnum leiðtoga sem er umbótadrifinn og hefur kraft til þess að móta og efla innri og ytri starfsemi embættisins. 

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum fer með stjórn lögregluliðs í sínu umdæmi. Hann annast daglega stjórn og rekstur lögreglunnar í umdæminu og ber ábyrgð á framkvæmd lögreglustarfa innan þess. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum á sæti í lögregluráði, sem hefur það hlutverk að efla samráð á meðal lögreglustjóra og samhæfa störf lögreglu. 

Áform eru um að setja heildarlöggjöf um brottfararstöð til að uppfylla skyldur Íslands samkvæmt Schengen-samstarfinu. Samhliða eru áform um breytingar á lögum um útlendinga sem varða m.a. hlutverk embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum þegar kemur að eftirliti á ytri landamærum. 

Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.

Aðrar hæfniskröfur eru eftirfarandi:

Öflug leiðtogahæfni og geta til að leiða umbótastarf og breytingar. 

  • Rík samskipta- og samstarfshæfni og faglegt viðmót.  
  • Þekking og yfirsýn yfir verkefni lögreglunnar kostur. 
  • Þekking og yfirsýn yfir málefni landamæra og útlendinga kostur.
  • Þekking og reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar kostur.
  • Reynsla af alþjóðasamstarfi kostur. 
  • Þekking og reynsla af rekstri kostur. 
  • Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni.
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.

Dómsmálaráðherra skipar lögreglustjóra til 5 ára í senn, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Miðað er við að skipað verði í embættið frá og með 1. desember 2025. Laun og starfskjör lögreglustjóra fer eftir ákvörðun með lögum, sbr. 6. og 7. mgr. 24. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Upplýsingar um starfið veita Haukur Guðmundsson ráðuneytisstjóri, í gegnum netfangið [email protected] og Unnur Helgadóttir mannauðsstjóri, í gegnum netfangið [email protected].

Umsækjandi skal í kynningarbréfi gera skýra grein fyrir hæfni sinni í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í 28. gr. laga nr. 90/1996 og auglýsingunni. Í umsókninni skulu einnig koma fram upplýsingar um hvern og einn þeirra þátta sem tilgreindir eru í 28. gr. lögreglulaga og auglýsingunni auk annarra upplýsinga sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf lögreglustjórans á Suðurnesjum. Með umsókn skulu fylgja afrit af prófskírteinum og upplýsingar um umsagnaraðila.

Umsóknarfrestur er til og með 3. október 2025