23 september 2025
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Jarðhiti jafnar leikinn - Kynning á framtíðarmöguleikum jarðhitanýtingar á Íslandi og styrkjum til jarðhitaleitar
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, býður til jarðhitakynningar vegna átaksins Jarðhiti jafnar leikinn, miðvikudaginn 24. september kl.11. Hægt er að fylgjast með kynningunni í gegnum streymi á vef Stjórnarráðsins.
Á fundinum verður kynnt ný jarðvarmamatsskýrsla frá ÍSOR og úthlutun Loftslags- og orkusjóðs á styrkjum til jarðhitaleitar. Þá mun Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kynna næstu skref stjórnvalda í málefnum jarðhita.
Jarðvarmamatsskýrsla ÍSOR inniheldur mat á varmaforða, varmaflæði og framtíðarmöguleikum jarðhitanýtingar á Íslandi. Þær rannsóknir sem þar liggja að baki geta gefið góðan grundvöll fyrir stefnu og aðgerðaráætlun stjórnvalda til framtíðar. Samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar er jarðhitaauðlindin á Íslandi enn öflugri en áður hefur verið talið og myndu 25% náttúrulega varmaflæðisins standa undir allri frumorkunotkun landsins.
Í vor kynnti umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra eins milljarðs króna jarðhitaátakið Jarðhiti jafnar leikin. Á fundinum á miðvikudag verður tilkynnt um úthlutun styrkja, en átakið hefur það markmið að stuðla að aukinni nýtingu jarðhita til húshitunar á svæðum þar sem nú er notast við rafmagn og/eða olíu.
Vilhjálmur Hilmarsson, stjórnarformaður Loftslags- og orkusjóðs, kynnir úthlutanirnar, en að auki munu tveir styrkþega kynna sín verkefni.