23 september 2025
/
Heilbrigðisráðuneytið
Samstaða um að styrkja lífvísindi, aðgerðir gegn sýklalyfjaónæmi og heilbrigðisviðbúnað í Evrópu
Óformlegur fundur heilbrigðisráðherra Evrópusambandsins (EPSCO) fór fram í Kaupmannahöfn dagana 15.–16. september í boði Dana sem fara nú með formennsku í ESB. Heilbrigðisráðherrum EES/EFTA-ríkjanna var einnig boðið til fundarins og sótti Alma D. Möller heilbrigðisráðherra fundinn fyrir hönd Íslands. Ráðherrarnir leggja áherslu á að Evrópa þurfi að efla samstöðu og viðbúnað til að tryggja sjúklingum jafnan aðgang að lyfjum og nýjum meðferðum í breyttu alþjóðlegu samhengi.
Á fundinum var fjallað um þrjú meginviðfangsefni: lífvísindi og klínískar rannsóknir, sýklalyfjaónæmi og heilbrigðisviðbúnað.
Lífvísindi og klínískar rannsóknir
Rætt var hvernig Evrópa geti styrkt stöðu sína á sviði lífvísinda og klínískra rannsókna með samræmdu verklagi og aukinni samvinnu. Markmið er að tryggja sjúklingum í öllum ríkjum Evrópu jafnan aðgang að nýjum og öruggum meðferðum.
Lögð var áhersla á að fjölþjóðlegar klínískar rannsóknir væru sérstaklega mikilvægar fyrir smærri ríki, þar sem þær geta tryggt sjúklingum aðgang að nýjum meðferðum jafnframt því að smáríki geti lagt sitt af mörkum til rannsókna. Ísland greindi frá því að hafa nú þegar mótað stefnu um einstaklingssniðna heilbrigðisþjónustu, sem byggir á nýtingu erfða- og heilsugagna, vísindalegri þekkingu og öflugri rannsóknastarfsemi. Með þessari sérstöðu getur Ísland lagt sitt af mörkum til alþjóðlegs samstarfs á sviði lífvísinda og klínískra rannsókna.
Sýklalyfjaónæmi
Rætt var um ört vaxandi ógn sýklalyfjaónæmis sem nú þegar veldur umtalsverðum heilsutjóni í Evrópu. Heilbrigðisráðherrar voru sammála um að nauðsynlegt væri að efla samvinnu, bæta skráningu og stuðla að þróun nýrra lyfja. Ísland greindi frá því að hér á landi er til staðar heildstæð aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis 2025–2029 sem byggir á nálguninni „Ein heilsa“ (e. One Health) eða því að heilbrigði manna, dýra og umhverfis sé samtengt og að smit og sýklar geti borist á milli þessara þátta. Einnig var bent á að smærri ríki ættu oft í erfiðleikum með að tryggja aðgang að breiðu úrvali sýklalyfja og nefnd var jákvæð reynsla Íslands af sameiginlegu útboði á sýklalyfjum með Noregi og Danmörku.
Heilbrigðisviðbúnaður og öryggi framboðs
Í lokafundi ráðherranna var fjallað um hvernig bæta megi heilbrigðisviðbúnað í Evrópu og styrkja framboð nauðsynlegra lyfja og lækningatækja. Ríkin lögðu áherslu á að efla gagnasöfnun og að samhæfa birgðahald þar sem víða skortir mikilvæg lyf. Einnig var rætt um hvernig nýta megi sameiginleg útboð innan ESB. Fulltrúi Amgros, lyfjainnkaupastofnunar Danmerkur, rakti reynslu Norðurlandanna af sameiginlegum útboðum. Með því fyrirkomulagi hefur tekist að ná betri kjörum, auka framboð og tryggja að minni markaðir hafi aðgang að nauðsynlegum lyfjum. Reynslan sýnir að slíkt samstarf getur verið fyrirmynd að víðtækari evrópskum lausnum. Samstaða með Úkraínu
Aðstoðarheilbrigðisráðherra Úkraínu, Yevhen Honchar, tók þátt í fundinum og greindi frá stöðu heilbrigðiskerfisins í landinu sem er undir miklu álagi vegna stríðsins. Fundurinn var jafnframt vettvangur til að staðfesta áframhaldandi stuðning við heilbrigðisþjónustu í Úkraínu.