24 september 2025

/

Forsætisráðuneytið

Átakanleg örlög brottnuminna úkraínskra barna rædd í New York

{image.Description}

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók í gær þátt í viðburði um úkraínsk börn, sem Úkraínuforseti og forsætisráðherra Kanada, ásamt eiginkonum þeirra, skipulögðu í tengslum við setningu allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna (SÞ). Rússar hafa numið á brott þúsundir úkraínskra barna og ungmenna frá því ólögleg innrás þeirra í Úkraínu hófst fyrir meira en þremur og hálfu ári síðan. Kanada og Úkraína leiða saman hóp 41 ríkis, sem vinnur að því að tryggja að börnin fái að snúa aftur heim.

Ísland styður frumkvæði Úkraínu og Kanada dyggilega enda er brottnám rússneskra stjórnvalda á úkraínskum börnum ein alvarlegasta birtingarmynd mannréttindabrota í innrásarstríði Rússlands. Í ræðu sinni á viðburðinum sagði forsætisráðherra að Rússar væru markvisst að eyðileggja líf barna og að þessar aðgerðir væru einn hryllilegasti angi stríðsins.

 „Ég tala hér ekki aðeins sem forsætisráðherra heldur einnig sem móðir. Á hverjum degi hugsa ég til úkraínskra mæðra sem vita ekki um örlög dætra sinna og sona. Hugrekki þeirra er ótrúlegt og sársaukinn er yfirþyrmandi. Þær eiga skilið samúð okkar og athygli og þær eiga skilið aðgerðir,“ sagði forsætiráðherra í ræðu sinni og lýsti yfir fullum stuðningi við þær aðgerðir sem bandalagið mun beita á næstunni.

Úkraínsk stjórnvöld hafa staðfest að meira en 19.500 börn hafi verið numin á brott frá því að innrásin hófst í febrúar 2022. Aðeins hefur tekist að endurheimta lítinn hluta barnanna og miðað við gang mála í dag mun ferlið taka fimmtíu ár. Aðgerðir Rússa gætu þó verið enn umfangsmeiri og skipulagðari en staðfestar tölur úkraínskra stjórnvalda gefa til kynna. Hópur sérfræðinga frá Yale-háskóla telur aðallt að 35 þúsund börnum hafi verið stolið. Í mörgum tilfellum hafa börnin verið numin á brott frá munaðarleysingjahælum, stofnunum eða jafnvel beint frá fjölskyldum sínum eftir að foreldrar hafa látist, verið fangelsaðir eða neyðst til að flýja.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fyrrverandi utanríkisráðherra er sérstakur erindreki Evrópuráðsins í málefnum úkraínskra barna. Hlutverk hennar er að auka vitund um þær áskoranir sem börn í Úkraínu standa frammi fyrir og afla stuðnings viðverkefni og aðgerðir til stuðnings úkraínskum börnum.