24 september 2025

/

Utanríkisráðuneytið

Atvinnuvegaráðuneytið

Ísland og FAO undirrita nýjan samstarfssamning

{image.Description}
Sigurjón Ragnar
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra, og Dr. QU Dongyu, forstjóri FAO, handsala samkomulagið að lokinni undirskrift í Safnahúsinu í dag.

Íslensk stjórnvöld og Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) hafa undirritað nýjan samstarfssamning til þriggja ára, sem ætlað er að efla samstarf Íslands og stofnunarinnar. Samningurinn var undirritaður miðvikudaginn 24. september í Safnahúsinu af Dr. QU Dongyu forstjóra FAO, sem er í stuttri heimsókn á Íslandi ásamt sendinefnd, og Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra í fjarveru Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem stödd er á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York. 

Ísland er eitt stofnríkja FAO sem er leiðandi alþjóðastofnun á sviði matvælaöryggis, landbúnaðar og sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda. 

„Þessi heimsókn undirstrikar mikilvægi virkrar þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi og hvernig við getum miðlað góðri reynslu okkar af sjálfbærri matvælaframleiðslu    og vernd náttúruauðlinda öðrum þjóðum til hagsbóta, “ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. „Þó við séum lítil þjóð þá getur reynsla okkar og þekking haft mikið að segja fyrir ríki heims og þá ekki síst er kemur að jafnréttismálum. Þá er sérlega ánægjulegt að efla tengslin við FAO á 80 ára afmælisári Sameinuðu þjóðanna og stofnunarinnar.“

Á meðan dvöl Dr. QU stendur á Íslandi fundar hann með Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, og Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Þá hyggst hann kynna sér hvernig íslensk stjórnvöld, stofnanir og fyrirtæki vinna að sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda, t.a.m. á sviði fiskveiða, jarðvarma og nýsköpunar.

Forstjóri FAO hyggst jafnframt heimsækja fjölbreytta flóru fyrirtækja og stofnana á Íslandi sem tengjast sjávarútvegi, nýsköpun og grænni orku, og kynna sér hvernig vistvænar lausnir styrkja samkeppnishæfni og sjálfbærni. 

Hinn kínverski Dr. QU tók við embætti forstjóra FAO árið 2019 og var endurkjörinn 2023. Hann er menntaður grasafræðingur og líffræðingur með doktorspróf í grasafræði frá Wageningen háskólanum í Hollandi. Hann hefur víðtæka reynslu af landbúnaðarþróun og matvælaöryggi, bæði sem vísindamaður og sem háttsettur embættismaður í kínverska landbúnaðarráðuneytinu.